Málsnúmer 1305011
Bæjarráð Grindavíkur - 1319. fundur - undefined
Skógræktarfélag Grindavíkur óskar eftir styrk til að gera náttúrulegt útileiksvæði fyrir börn og foreldra í Selskógi við Þorbjörn.
Að mati bæjarráðs falla hugmyndir Skógræktarfélags Grindavíkur vel að markmiðum Grindavíkurbæjar um uppbyggingu útivistarsvæðisins við Þorbjörn.
Bæjarráð samþykkir að styrkja verkefnið um 250.000 kr. sem fjármagnað verður af styrktarfé bæjarráðs.