Málsnúmer 1304050
Bæjarstjórn Grindavíkur - 430. fundur - 5.2.2013 00:00:00
Til máls tók: Bryndís
Með vísan til 30.gr sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 óskar Þórunn Erlingsdóttir bæjarfulltrúi B-lista eftir lausn frá störfum sem bæjarfulltrúi Grindavíkurbæjar. Jafnframt óskaði hún eftir að eftirfarandi verði bókað:
Ég vil hér með tilkynna að ég (Þórunn Erlingsdóttir) læt af störfum sem bæjarfulltrúi fyrir Framsókn í Grindavík. Ég bað um ársleyfi síðasta vor því við fjölskyldan fluttum norður og ætluðum bara að vera eitt ár meðan faðirinn væri að spila fótbolta þar. Við höfum ákveðið að framlengja þessar dvöl okkar um 1 ár hér fyrir norðan og verð ég því að láta af störfum sem bæjarfulltrúi. Dagskráin er síðan að koma aftur suður haustið 2014.
Ég get þá því miður ekki tekið þátt í þessu frábæra starfi sem er unnið í Grindavík síðasta árið í kjörtímabilinu. Ég vil þakka kærlega samstarfsfólki mínu fyrir flott starf og er stolt af því hvernig unnið er að hlutnum í Grindavík. Tel að fleiri ættu að taka sér það til fyrirmyndar að koma saman að borðinu og vinna sameiginlega að þeim málum sem þarf að vinna. Það geta ekki alltaf allir verið sammála en það er hægt að finna leið þar sem flestir geta unað sér við niðurstöðuna og góð hugmynd er alltaf góð hugmynd sama hvaðan hún kemur. Með slíku samstarfi fáum við betra samstarf og erum ekki að nýta alla orkuna í að rífa andstæðinginn niður. Hagur fólksins í bæjarfélaginu á að skipta mestu máli.
Ég hef lært margt á þessum stutta tíma og er þakklát fyrir það. Hilmar Eyberg Helgason tekur mitt sæti alfarið en hann tók við mínu sæti meðan ég var í ársleyfi síðan í sumar.
Virðingarfyllst
Þórunn Erlingsdóttir
Bæjarstjórn samþykkir beiðnina samhljóða og mun Hilmar Helgason taka sæti hennar í bæjarstjórn. Bæjarstjóra falið að útbúa ný kjörbréf til aðal- og varamanna vegna breytingarinnar.
Bæjarstjórn þakkar Þórunni Erlingsdóttur fyrir gott samstarf og óskar henni velfarnaðar á nýjum vettvangi.