Málsnúmer 1304004
Bæjarráð Grindavíkur - 1316. fundur - undefined
Til fundarins var mættur sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs og kynnti hann fyrirhugaðar breytingar á húsinu en stjórn Kvikunnar hefur óskað eftir heimild til að fara í breytingar á húsinu og leigja út aðra hæðina ásamt því að færa Jarðorkusýninguna á fyrstu hæð. Breytingarnar verða fjármagnaðar af rekstri Kvikunnar.
Bæjarráð veitir Kvikunni heimild til að fara í breytingar á húsnæðinu og leigja út aðra hæðina.
Stjórn saltfiskseturs íslands ses leggur fram tillögur um breytingar á fasteigninni Hafnargötu 12a til að koma til móts við óskir væntanlegra leigjenda á 2. hæð hússins. Ingvar kynnir fyrirhugaðar breytingar á húsinu.