Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1303049

Bæjarráð Grindavíkur - 1335. fundur - undefined


Greinargerð Helenu Bj. Bjarnadóttur formanns frístunda- og menningarnefndar og Kristins J. Reimarssonar sviðsstjóra um tillögu bæjaráðs um göngu- og hjólabæinn Grindavík lögð fram.

Frístunda- og menningarnefnd hefur fjallað um greinargerðina og leggur til við bæjarráð að eftirfarandi verkefnum verði hrint í framkvæmd.
- Lagt er til að settar verði 1.200.000 kr. í samgöngusamninga - samgöngustyrki á árinu 2014.
- Lagt er til að keypt verði 4 - 6 hjól strax á næsta ári fyrir starfsmenn til að hjóla á milli stofnanna.
- Lagt er til að samhliða áframhaldandi þátttöku í verkefninu Göngum/hjólum í skólann verði það útvíkkað inn á allar stofnanir Grindavíkurbæjar og jafnvel fleiri fyrirtækja í bænum.
- Lagt er til að hafin verði vinna við gerð göngu- og hjólastígakorts sem verði aðgengilegt á vef Grindavíkurbæjar 2015.
- Lagt er til að hugað verði sérstaklega að göngustígum fyrir eldri borgara út frá Víðihlíð/Miðgarði og jafnhliða verði settir upp bekkir fyrir eldra fólk eða fótalúna.
- Lagt er til að í 3 - 4 ára áætlun verði sett fjármagn í hjólaskýli við stofnanir Grindavíkurbæjar.

Bæjarráð samþykkir tillögur frístunda- og menningarnefndar og felur sviðsstjóra ábyrgð á framkvæmd verkefnisins.