Málsnúmer 1302061
Bæjarstjórn Grindavíkur - 428. fundur - undefined
Ingvar Þór Gunnlaugsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Undirskriftarlisti með ósk um breytingu á skipulagi í Laut er lagður fram. Bæjarráð óskaði eftir umsögn skipulags- og umhverfisnefndar.
Skipulags- og umhverfisnefnd hefur fjallað um óskina og bendir á að í gildi sé deiliskipulag fyrir Dalbraut og Laut og forsendur hafi ekki breyst frá því að það var samþykkt.
Forseti leggur til að bæjarstjórn taki undir umsögn skipulags- og umhverfisnefndar og telji ekki rétt að breyta deiliskipulagi að svo stöddu og feli sviðstjóra skipulags- og umhverfissviðs að ganga frá svæðinu.
Forseti veitti 15 mínútna fundarhlé kl. 18.15.
Fundur settur aftur 18.30.
Oddviti G-lista leggur fram eftirfarandi bókun.
Það er mat oddvita G-listans að skipulag svæðisins hafi verið illa ígrundað og án allrar samvinnu eða samráðs við þá íbúa sem fyrir voru. Þétting byggðar er vel skiljanleg og það hefur sannarlega verið gert á svæði Lautar enda bæði komin einbýlishúsabyggð, leiksskóli og þrjú fjölbýlishús. Hátt í 70 manns á svæðinu hafa óskað eftir því að slakað verði á þéttingu byggðar og í staðinn komi grænt svæði. Það er skoðun oddvita að reynt verði eftir fremsta megni að vinna skipulag svæðisins í sátt við íbúa þess. Í skipulagsvinnu um gamla bæinn kom skýrt fram af hálfu íbúa að umrætt svæði ætti að tilheyra gamla bænum. Þrátt fyrir að enn sé töluvert í að sú vinna verði kláruð og kynnt þá er kjörið tækifæri til að taka þær lóðir sem eftir standa inn í þá deiliskipulagsvinnu.
Oddviti G-listans
Forseti ber tillögu sína upp að nýju.
Samþykkt með sex atkvæðum, einn situr hjá.
Til máls tóku: Bryndís, Kristín María, Páll Jóhann, Guðmundur og Marta.