Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1302008

Frístunda- og menningarnefnd - 18. fundur - 2.6.2013 00:00:00


Tekið fyrir erindi Önnu Sigríðar Sigurjónsdóttur og Sólveigar Baldursdóttur myndhöggvara þar sem kynnt er hugmynd að steinskúlptur symposium sumarið 2014. Hugmyndin er að bjóða listamönnum til Grindavíkur þar sem þeir munu dvelja, í ca. einn mánuð, við vinnu og gerð skúptúra sem verða að lokinni þessari vinnu og sýningu í eign Grindavíkurbæjar. Telja þær að hér sé gott tækifæri fyrir Grindavíkurbæ til að eignast ómetanleg listaverk, sem gætu orðið upphafið af skúptúrgarði eða útilistaverkasafni bæjarins og haft mikið aðdráttarafl fyrir ferðafólk og jafnframt væri þetta verkefni til að efla menningarstarf í samfélaginu. Nefndin getur ekki komið að erindinu í núverandi mynd en fagnar þó hugmyndinni og hugsanlega er hægt að leggja til húsnæði.