Málsnúmer 1301010
Bæjarráð Grindavíkur - 1307. fundur - 1.8.2013 00:00:00
Sviðsstjóri frístunda-og menningarsviðs sat undir þessum lið.
Bréf hagsmunaaðila innan íþróttahreyfingarinnar vegna uppbyggingar íþróttamannvirkja dags. 3. desember 2012 lagt fram.
Fulltrúi D-lista leggur fram eftirfarandi bókun.
Bréf þetta barst bænum í byrjun desember 2012. Það er tekið hér fyrir að beiðni fulltrúa D- lista. En forseti bæjarstjórnar neitaði að taka það fyrir á síðasta bæjarstjórnafundi.
Í þessu bréfi sem er undirritað af fulltrúum allra deilda UMFG er kvartað yfir samskiptaleysi við deildirnar, og margar athugasemdir gerðar við fyrirhugaða framkvæmd á íþróttasvæðinu.
Fulltrúi D - lista
Fulltrúi B-lista leggur fram eftirfarandi bókun.
Fulltrúi B-lista vill ítreka að á síðasta bæjarstjórnarfundi var farið yfir það afhverju umrætt bréf var ekki á dagskrá þar sem enn væri verið að vinna úr þeim athugasemdum er komu fram í bréfinu og á fundi byggingarnefndar í upphafi desember. Síðan þá hefur bæjarstjórn og bæjarráð verið í fríi.
Einnig er vert að benda á að bréfið er skrifað af hagsmunaaðilum UMFG en ekki fulltrúum deilda UMFG.
Fulltrúi B-lista.
Í ljósi framkominna athugasemda nokkurra hagsmunaaðila innan UMFG telur bæjarráð rétt að eftirfarandi komi fram.
Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 28. september 2011 að skipa vinnuhóp sem hafi það að markmiði að leggja fram tillögu um skipulag íþróttasvæðis Grindavíkurbæjar og uppbyggingu mannvirkja til næstu ára. Hópnum var falið að vinna á grunni skýrslu nefndar um Framtíðaruppbyggingu á íþróttasvæði Grindavíkur.
Bæjarstjórn setti verkefninu auk þess eftirfarandi forsendur:
Að sameina inngang og afgreiðslu íþróttahúss og sundlaugar með það markmiði að nýta starfsfólk sem best og að inngangurinn sé skemmtilegur og aðlaðandi fyrir gesti og gangandi.
Að íþróttahúsið geti nýst sem veislusalur fyrir 350-400 gesti á snyrtilegan og einfaldan hátt
Að körfuknattleiksvöllur verði löglegur.
Að bæta æfingaaðstöðu fyrir júdódeild og taekwondo
Að bæta æfingaaðstöðu og áhaldageymslu fyrir fimleikadeild.
Að almenningsíþróttir fái að njóta sín.
Að húsnæðið rúmi sameiginlega aðstöðu fyrir deildir UMFG til funda og skrifstofuhalds.
Að bygginging sé í samræmi við aðrar byggingar á reitnum, látlaus og að fermetrar nýtist sem best.
UMFG var með fulltrúa í vinnuhópnum sem tók virkan þátt í mótun tillögunnar. Auk þess var haft samráð við deildir UMFG, m.a. á kynningarfundi þann 12. desember 2011. Nokkrar athugasemdir komu fram á fundinum. Knattspyrnu-, körfuknattleiks-, og taekwondódeild UMFG skiluðu síðar inn skriflegum athugasemdum sem og aðalstjórn UMFG. Vinnuhópurinn fjallaði um athugasemdirnar á fundum sínum og var komið til móts við þær eftir bestu getu. Lokaskýrslu hópsins var skilað til bæjarstjórnar þann 25. janúar 2011, og koma athugasemdirnar fram í skýrslunni.
Í kjölfar skýrslunnar var unnið áfram með málið og skipuð bygginganefnd, þar sem UMFG á fulltrúa sem hefur tekið virkan þátt í starfi nefndarinnar og komið ábendingum um útfærslur á framfæri.
Verkefnið hefur verið í vinnslu í rúmlega ár og ljóst er að haft var samráð við UMFG á öllum stigum málsins og er það nú á lokastigum hönnunar. Gert er ráð fyrir að útboðsgögn verði unnin í vetur og útboð fari fram í vor. Framkvæmdir hefjast að líkindum haustið 2013 og lýkur 2016.
Um leið og bæjarráð þakkar fyrir ábendingar sem fram koma í bréfinu er athygli vakin á því að fyrirhugað er að funda með fulltrúum deilda og aðalstjórnar UMFG þann 15. janúar næstkomandi og er hagsmunaaðilum bent á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við fulltrúa félagsins fyrir þann tíma.