Málsnúmer 1211104
Frístunda- og menningarnefnd - 17. fundur - 1.3.2013 00:00:00
Farið yfir innkomnar upplýsingar frá körfuknattleiksdeildinni. Í ljósi þess að umrædd hugmynd getur gefið deildinni verulegar upphæðir til rekstrar samþykkir nefndin að heimila nafnabreytingu á húsinu. Leyfið er veitt til tveggja ára með endurskoðun að þeim tíma liðnum. Þar sem ný íþróttamiðstöð er í uppbyggingu telur nefndin ekki rétt að veita leyfi til lengri tíma að svo stöddu. Uppsetning á skiltum skal gerð í samráði við forstöðumann íþróttamannvirkja og að gefnu leyfi skipulags- og umhverfisnefndar.