Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1211100

Bæjarráð Grindavíkur - 1307. fundur - 1.8.2013 00:00:00


Sviðsstjóri frístunda-og menningarsviðs sat undir þessum lið.
Drög að samkomulagi almannavarnanefndar og lögreglustjóra við hjálparlið í umdæmi lögreglustjórans á Suðurnesjum lögð fram.
Almannavarnanefnd Grindavíkur óskar eftir áliti bæjarstjórnar á ákvæði 6. liðar um aðkomu almannavarnarnefnda að uppbyggingu á búnaði hjálparliða ef hann glatast eða skemmist.

Bæjarráð tekur undir álit annarra sveitarfélaga á svæðinu um að ákvæði um fjárhagslegan stuðning ættu ekki að vera í samningi um hjálparlið í almannavarnaástandi. Grindavíkurbær gerir styrktarsamninga við hjálparliðin og telur rétt að halda þeim aðskyldum frá samningi þessum, eins og gert er annarsstaðar á landinu.