Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1211091

Bæjarstjórn Grindavíkur - 424. fundur - undefined


Til máls tóku: Bryndís, Guðmundur, Hilmar og Páll Valur

Forseti bæjarstjórnar leggur til að álagningarhlutfall útsvars árið 2013 verði 14,28%. Tekið hefur verið tillit til þeirrar tillögu í fjárhagsáætlun 2013 sem liggur fyrir fundinum.

Breytingatillaga
Fulltrúi D-lista leggur til að álagningarhlutfall útsvars verði 14.08 fyrir árið 2013.

Greinargerð
Undanfarin ár hafa útsvarstekjur Grindavíkurbæjar aukist meira en áætlanir hafa gert ráð fyrir og aldrei meira en árið 2012 eða um 70 milljónir umfram áætlun.
Þetta ásamt þeim góða árangri sem náðst hefur á þessu kjörtímabili við að snúa taprekstri A- hluta bæjarsjóðs í afgang upp á 140 milljónir fyrir rekstrarárið 2013, gefur ástæðu til þess að lækka útsvarsprósentuna þannig að heimilin í Grindavík verði vör við það og eftirsóknara verði t.d. fyrir sjómenn er róa á grindvískum bátum að flytjast hingað.

Tillagan er felld með 6 atkvæðum.

Kl. 17:35 er tekið fundarhlé.
Fundarhléi lauk kl. 17:40

Bæjarfulltrúar B-, G- og S-lista telja mikilvægt að stíga varlega til jarðar og eiga borð fyrir báru. Ástandið í samfélaginu er viðkvæmt, ekki er vitað hvaða afleiðingar breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu munu hafa á Grindavík, fjallað hefur verið um verkbann á sjómenn og á næsta ári munu fleiri atvinnulausir einstaklingar verða á framfæri sveitarfélaga. Einnig er ljóst að tekjur Grindavíkurbæjar hafa vaxið hratt síðustu árin og óljóst er hvort sú þróun verði áfram. Betra er að lækka útsvar um 0,20% fyrir fjárhagsáætlun ársins 2013 og vonandi verður hægt að lækka útsvarið meira að ári.
Bæjarfulltrúar B- G- og S-lista

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillöguna um 14,28% útsvarshlutfall og felur bæjarstjóra að tilkynna fjármálaráðuneytinu fyrir 15. desember í samræmi við 20. gr.
laga nr. 4/1995.


Forseti bæjarstjórnar leggur til að álagningarhlutfall útsvars árið 2013 verði 14,28%. Tekið hefur verið tillit til þeirrar tillögu í fjárhagsáætlun 2013 sem liggur fyrir fundinum.