Málsnúmer 1211056
Bæjarstjórn Grindavíkur - 425. fundur - undefined
Til máls tóku: Bryndís, Guðmundur og bæjarstjóri
Markmið verkefnisins er að virkja atvinnuleitendur, sem hafa fullnýtt eða munu að óbreyttu fullnýta rétt sinn innan atvinnuleysistryggingakerfisins, til þátttöku að nýju á vinnumarkaði.
Bæjarráð fól bæjarstjóra að vinna áfram í málinu og lagði til að forsendur fyrir þátttöku Grindavíkurbæjar í verkefninu væri að stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs og ríkisstjórn samþykki fyrirliggjandi tillögu og að almenn þátttaka sveitarfélaga verði í verkefninu. Þau skilyrðu eru uppfyllt. Samþykki Grindavíkurbær þátttöku í verkefninu skal bærinn skapa sex störf á næstu sex mánuðum.
Bæjarstjórn samþykkir þátttöku í verkefninu. Áætlaður kostnaður vegna verkefnisins er kr. 1.800.000 sem færist á félagsmál.
Stjórn sambandsins hefur samþykkt sem og ríkisstjórn. Heimild til skilyrðingar fjárhagsaðstoðar er háð lagabreytingu sem menn segjast ætla að vinna að á vorþingi.