Málsnúmer 1211023
Bæjarstjórn Grindavíkur - 424. fundur - undefined
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslu fór yfir tillöguna, en hún felur í sér óbreytt hlutföll frá árinu 2012 að því undanskildu að vatns-og fráveitugjöld lækka úr annarsvegar 0,14% og hinsvegar 0,13 í 0,11% af fasteignamati. Sorphirðu-og sorpeyðingargjöld hækka samtals um 1.210 kr. á ári og aukavatnsgjald hækkar úr 15 í 16 kr./m3
Aðrir sem til máls tóku: Guðmundur
Álagningarreglur fasteignagjalda 2013:
1. Fasteignaskattur
1.1. Íbúðarhúsnæði (a-liður)........ 0,31% af fasteignamati húss og lóðar
1.2. Opinberar byggingar (b-liður).. 1,32% af fasteignamati húss og lóðar
1.3. Annað húsnæði (c-liður)........ 1,65% af fasteignamati húss og lóðar
2. Holræsagjald
2.1. Íbúðarhúsnæði (a-liður)........ 0,11% af fasteignamati húss og lóðar
2.2. Opinberar byggingar (b-liður).. 0,25% af fasteignamati húss og lóðar
2.2. Annað húsnæði (c-liður)........ 0,25% af fasteignamati húss og lóðar
3. Vatnsgjald
3.1. Íbúðarhúsnæði (a-liður)........ 0,11% af fasteignamati húss og lóðar
3.2. Opinberar byggingar (b-liður).. 0,25% af fasteignamati húss og lóðar
3.3. Annað húsnæði (c-liður)........ 0,25% af fasteignamati húss og lóðar
3.4. Aukavatnsgjald................. 16 kr/m3 vatns
4. Sorphreinsunargjald/Tunnuleiga
4.1. Íbúðarhúsnæði.................. 14.225 kr. tunnu pr. ár
5. Sorpeyðingargjald
5.1. Íbúðarhúsnæði.................. 23.210 kr. tunnu pr. ár
6. Lóðarleiga
6.1. Íbúðahúsalóðir................. 1,20% af fasteignamati lóðar
6.2. Lóðir v. opinberra bygginga.... 2,00% af fasteignamati lóðar
6.3. Lóðir v. annað húsnæði......... 1,60% af fasteignamati lóðar
7. Rotþróargjald
7.1. Rotþróargjald.................. 10.000 kr. pr. rotþró pr. ár
8. Fjöldi gjalddaga 10
1/2, 1/3, 1/4, 1/5, 1/6, 1/7, 1/8, 1/9, 1/10 og 1/11 2013.
Heildarfjárhæð á einn gjalddaga: 20.000 kr.
Álagningarreglur fasteignagjalda eru samþykktar samhljóða.