Málsnúmer 1210065
Bæjarráð Grindavíkur - 1302. fundur - undefined
Áfangaskýrsla Suðurnesjavaktarinnar fyrir árið 2012 er lögð fram.
Bæjarráð lýsir yfir áhyggjum af þeim niðurstöðum sem skýrslan gefur til kynna, þó atvinnuástand í Grindavík sé talsvert betra en annarsstaðar á svæðinu. Bæjarráð fagnar því að stefnt sé að því að grípa til mótvægisaðgerða með skipulögðum hætti. Miklar vonir eru t.d. bundnar við árangur af verkefni menntamálaráðuneytisins um eflingu menntunar á Suðurnesjum. Ljóst er að menntunarstig á svæðinu batnar ekki nema fjármagn fylgi, en framlög ríkisins til Fjölbrautaskóla Suðurnesja eru lægri á hvern nemanda en í öðrum sambærilegum skólum.
Bæjarráð vísar skýrslunni til félagsmálanefndar til upplýsingar.
Vísa til félagsmálanefndar til upplýsingar. Fleiri?