Málsnúmer 1210059
Bæjarráð Grindavíkur - 1310. fundur - 2.12.2013 00:00:00
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýsluviðs fór yfir minnisblað hans og slökkvistjóra varðandi mögulega yfirtöku Grindavíkurbæjar á sjúkraflutningum.
Ljóst er að það fjármagn sem á að fylgja verkefninu frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mun ekki duga til að reka verkefnið í samræmi við kröfur Sjúkratrygginga Íslands til sjúkraflutninga.
Bæjarráð telur að Grindavíkurbær geti sinnt þjónustunni með betri hætti en HSS ef rétt fjármagn fylgir með verkefninu.