Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1210049

Bæjarstjórn Grindavíkur - 423. fundur - undefined


Tillaga starfshóps um gildi í starfsemi Grindavíkurbæjar lögð fram.
Vinna við tillöguna hófst á starfsmannadegi Grindavíkurbæjar 2011 og voru tillögurnar kynntar á starfsmannadegi Grindavíkurbæjar 2012.
Tillagan er:
Jafnræði- Við höfum jafnrétti, samkennd og samvinnu að leiðarljósi
Jákvæðni- Við erum uppbyggileg í samskiptum
Þekking- Við byggjum á menntun, reynslu og hugviti
Framsækni- Við erum forsjál, vinnusöm og skapandi
Traust- Við erum heiðarleg, vandvirk og orðheldin

Bæjarráð leggur til að tillagan verði samþykkt.
Bæjarstjórn staðfestir ofangreind gildi í starfsemi Grindavíkurbæjar og felur bæjarstjóra að kynna þau vel fyrir starfsfólki og hvetja þau til að nota gildin í sínum störfum.
Samþykkt samhljóða

Bæjarstjórn þakkar starfsfólki Grindavíkurbæjar fyrir þátttöku í mótun gildanna.