Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1210039

Bæjarstjórn Grindavíkur - 424. fundur - undefined


Skipulags-og umhverfisnefnd leggur til tvær breytingar á Aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2010-2030.

Annarsvegar er um að ræða breytingu vegna fráveitulagnar frá
niðurdælingarveitu í Svartsengi út í sjó, svæðið afmarkað með rauðri brotalínu á skipulagsuppdrætti.
Tilgangur aðalskipulagsbreytingarinnar er að uppfylla skilyrði í starfsleyfi orkuversins í Svartsengi.

Hinsvegar er um að ræða breytingu á þéttbýlisuppdrætti gildandi Aðalskipulags Grindavíkur 2010-2030,
miðbæjarsvæði Grindavíkur, svæði afmarkað með rauðri brotalínu á skipulagsuppdrætti.
Tilgangur aðalskipulagsbreytingarinnar er að skapa umgjörð um lifandi miðbæ í Grindavík.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að kynna aðalskipulagsbreytinguna ásamt umhverfisskýrslu skv. 2.mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.


Nefndin samþykkir að kynna aðalskipulagsbreytinguna ásamt umhverfisskýrslu skv. 2.mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010