Málsnúmer 1209083
Bæjarráð Grindavíkur - 1300. fundur - undefined
Þórólfur Halldórsson sýslumaður í Keflavík kom á fundinn og gerði grein fyrir því að fjárveiting sem veitt hefur verið vegna sýsluskrifstofunnar í Grindavík sé ekki í frumvarpi til fjárlaga ársins 2013, þrátt fyrir loforð þar um. Í ljósi þess hafi hann sagt upp starfsmanni embættisins í Grindavík.
Bæjarráð ítrekar að í 3. gr. reglugerðar um stjórnsýsluumdæmi sýslumanna og lögregluumdæmi lögreglustjóra nr. 66/2007 er mælt fyrir um að það skuli vera útibú frá sýslumanni í Grindavík. Sýslumanni er því óheimilt að loka skrifstofunni án heimildar innanríkisráðherra.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir fundi með innanríkisráðherra hið fyrsta.