Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1209055

Bæjarstjórn Grindavíkur - 423. fundur - undefined


Til máls tóku: Bryndís, Páll Gísla, bæjarstjóri, Guðmundur, Páll Jóhann og Páll Valur.

Skipulags- og umhverfisnefnd hefur lagt til að jarðvegstippnum við Nesveg verði lokað með þeim fyrirvara að verktakar geti óskað eftir opnun í samráði við Þjónustumiðstöð Grindavíkurbæjar.

Bæjarstjórn samþykkti tillögu nefndarinnar í febrúar og óskaði eftir framtíðarlausn á förgun jarðvegs- og garðaúrgangs í Grindavík. Nefndin ítrekar að hún er enn þeirrar skoðunar að loka eigi núverandi jarðvegstipp bæjarins fyrir almenningi og leggur áherslu á að nýr losunarstaður verði vaktaður við gámaplan Kölku við Nesveg.

Tillaga
Bæjarstjórn samþykkir að jarðvegstippnum við Nesveg verði lokað, þó þannig að jarðvinnuverktakar geti opnað í samráði við Þjónustumiðstöð Grindavíkurbæjar.
Áður en til lokunar kemur verði nýr myndavélavaktaður losunarstaður fyrir gróður og jarðefni opnaður við gámaplan Kölku.
Samþykkt samhljóða