Málsnúmer 1207024
Bæjarráð Grindavíkur - 1307. fundur - 1.8.2013 00:00:00
Svarbréf Golfklúbbs Grindavíkur dags. 10. desember 2012 lagt fram þar sem tillögu bæjarstjórnar frá 31. október 2012 um útfærslu styrks vegna klæðningar á golfskála er hafnað. Jafnframt er Ársskýrsla Golfklúbbs Grindavíkur fyrir árið 2012 lögð fram.
Bæjarráð harmar þær rangfærslur sem koma fram í ársskýrslunni varðandi stuðning Grindavíkurbæjar við Golfklúbb Grindavíkur. Ljóst er að stuðningur Grindavíkurbæjar við golfíþróttina er mun hærri á hvern íbúa en hjá þeim golfklúbbum sem GG ber sig saman við í árskýrslunni. Sem dæmi má nefna eru framlög til rekstrar og barna- og unglingastarfs tæplega 1.400 kr á hvern í íbúa í Grindavík, meðan þau eru tæplega 200 kr á hvern íbúa í Hafnarfirði, Kópavogi og Garðabæ.
Svarbréf golfklúbbs lagt fram ásamt ársskýrslu