Málsnúmer 1207002
Bæjarráð Grindavíkur - 1320. fundur - 6.4.2013 00:00:00
Birgir Ingi Guðmundsson fer fram á framlengingu erfðafestu á Hópi I og Hópi II til 25 ára með þriggja ára uppsagnarfresti.
Bæjarstjóri upplýsir að hann hafi átt fundi með Birgi Inga og skrifað honum bréf vor og sumar 2012 vegna málsins, en hjá Grindavíkurbæ er ekki að finna nein gögn um erfðafesturétt hans í landi Hóps. Kallað hefur verið eftir slíkum gögnum frá Birgi Inga án þess að nokkur hafi borist.
Bæjarráð hafnar beiðninni, en felur bæjarstjóra að útbúa tillögu að endurnýjun lóðarleigusamnings dags. 13. desember 1996 um lóð úr landi Hóps. Sá samningur rennur út 1. júlí 2013.