Málsnúmer 1204036
Bæjarráð Grindavíkur - 1330. fundur - 10.8.2013 00:00:00
Á fundi stjórnar Reykjanesfólkvangs þann 3. október var fjallað um framgang verkefna með vísan til minnisblaðs Sverris Bollasonar og Róberts Ragnarssonar dags. 3. júní 2013.
Í minnisblaðinu var lagt upp með að aðildarsveitarfélög Reykjanesfólkvangs myndu taka afstöðu til fimm atriða fyrir 1. september 2013. Grindavíkurbær hefur þegar tekið afstöðu til allra þeirra þátta sem málið varðar og samþykkt fyrir sitt leyti tvöföldun framlags til Reykjanesfólkvangs á árinu 2013.
Bæjarráð harmar að sveitarfélögin hafi ekki tekið afstöðu til atriðanna eins og lagt var upp með. Ekki hafa enn öll sveitarfélög tekið afstöðu til tvöföldunar fjárframlaga til fólkvangsins á árinu 2013, né skilað inn umsögn um drög að stjórnunaráætlun Reykjanesfólkvangs.
Bæjarráð fer fram á að afstaða þeirra sveitarfélaga sem ekki hafa tekið afstöðu liggi fyrir eigi síðar en 1. nóvember svo hægt sé að taka ákvarðanir um framtíð Reykjanesfólkvangs.
Ræða viðbrögð með vísan til fundargerðar RF sem liggur fyrir fundinum.