Málsnúmer 1204011
Bæjarráð Grindavíkur - 1337. fundur - 12.10.2013 00:00:00
Bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögum starfshóps að sí- og endurmenntunaráætlun starfsmanna Grindavíkurbæjar. Með áætluninni er komið til móts við ábendingar frá Starfsmannadegi Grindavíkurbæjar 2012.
Bæjarráð samþykkir áætlunina og felur starfsmannastjóra að koma henni til framkvæmdar.
Tillaga starfshóps lögð fram.