Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1203030

Bæjarráð Grindavíkur - 1309. fundur - 2.5.2013 00:00:00


Gunnlaugur Hreinsson, Sigurður Enoksson og Valgerður Jennýjardóttir fulltrúar aðalstjórnar UMFG komu á fundinn ásamt Guðmundi Bragasyni sem tilnefndur var fulltrúi deilda UMFG á fundi þeirra í janúar.

Kristinn Reimarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat undir afgreiðslu þessa liðar.

Fulltrúar aðalstjórnar UMFG lýsa yfir almennri ánægju með fyrirhugaðar framkvæmdir sem muni jafnt efla íþrótta- og félagsstarf félagsins.

Guðmundur Bragason las upp bréf frá formanni knattspyrnudeildar UMFG og kynnti sjónarmið körfuknattleiksdeildar UMFG. Jafnframt fór hann yfir tímaáætlun sem hann vann um núverandi tímanotkun körfuknattleiksdeildarinnar og til framtíðar.

Bókun B-, G- og S-lista.
Bæjarráð þakkar deildum UMFG fyrir þær athugasemdir er fram komu á bæjarráðsfundi þann 15. janúar. Tekið hefur verið tillit til þeirra athugasemda líkt og kostur var. Eftir standa annars vegar athugasemd knattspyrnudeildar um að þeirra aðstaða eigi að vera við Hópið en ekki í sameiginlegri aðstöðu allra deilda UMFG og hins vegar ósk körfuknattleiksdeildar um að byggt verði nýtt íþróttahús er rúmar þrjá æfingasali og sé með löglegum keppnisvelli. Varðandi ósk knattspyrnudeildar vill bæjarráð vekja athygli á því að eitt af markmiðum bæjarstjórnar er samþykkt var þann 28. september 2011 var að sameina íþróttasvæðið í eina félagsaðstöðu en þó er gert ráð fyrir uppbyggingu á salernisaðstöðu og aðstöðu til veitingasölu við Hópið. Varðandi ósk körfuknattleiksdeildar þá er vert að benda á að sú ósk kom einnig fram snemma árs 2012 og var könnuð. Niðurstaðan þá var að byggja ekki nýtt stórt íþróttahús bæði vegna kostnaðar við uppbyggingu sem og rekstur. Niðurstaðan er sú sama núna. Vert er þó að benda á að í framtíðinni er mjög líklegt að þörf sé á að byggja nýtt íþróttahús og þá þarf að vega og meta hvort betra sé að hafa það við grunnskólann Ásabraut eða við íþróttasvæðið.

Bæjarráð vill einnig benda á að nú er í fyrsta sinn mörkuð stefna og framkvæmdaáætlun til uppbyggingar íþróttamannvirkja. Samþykkt hefur verið tímasett og fjármögnuð áætlun um uppbyggingu á íþróttasvæðinu næstu fjögur ár. Gert er ráð fyrir því að kostnaðurinn verði 700-800 milljónir króna. Þessi uppbygging er til að mæta brýnustu þörf þeirra er nýta íþróttasvæðið (grunnskóli, deildir UMFG, aðrir iðkendur, almenningur og starfsfólk). Þeirri uppbyggingu verður lokið 2016. Jafnframt er unnið að deiliskipulagi svæðisins sem veitir svigrúm fyrir frekari uppbyggingu til lengri framtíðar. Auk þess er nú unnið að frumhönnun sundlaugarsvæðis, en ljóst er að nauðsynlegt er að hefjast handa við endurbætur á sundlaugarsvæði innan fárra ára.

Bæjarráð samþykkir því að halda áfram uppbyggingu á íþróttasvæðinu í samræmi við tillögu nefndar um skipulag og uppbyggingu mannvirkja til næstu ára, sem kynnt var í janúar 2012.

Bæjarráð samþykkir einnig að endurskoða opnunartíma íþróttahússins nú í haust svo hægt sé að fjölga tímum í húsinu ásamt því að í fjárhagsáætlunargerð næsta árs verður endurskoðað hvort hægt sé að flýta stækkun íþróttahússins.

Bæjarráð felur bygginganefnd íþróttamannvirkja að gera ráð fyrir því að í framtíðinni sé sá möguleiki fyrir hendi að nýtt íþróttahús rísi við norðurenda núverandi íþróttahúss og tekið sé tillit til þess við hönnun 2. áfanga.

Greinargerð B-, G- og S-lista með bókun við 1. mál á dagskrá bæjarráðs Grindavíkur ? fundur 1309. Íþróttamannvirki.

Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 28. september 2011 að skipa vinnuhóp sem hafði það að markmiði að leggja fram tillögu um skipulag íþróttasvæðis Grindavíkurbæjar og uppbyggingu mannvirkja til næstu ára. Hópnum var falið að vinna á grunni skýrslu nefndar um Framtíðaruppbyggingu á íþróttasvæði Grindavíkur. Sú skýrsla fól í sér uppbyggingu fyrir tæpa þrjá milljarða króna. Ljóst var að ekki væri hægt að fara í alla þá uppbyggingu í einu og þurfti því að taka ákvörðun um hvaða framkvæmdir ættu að hafa forgang á næstu árum.

Bæjarstjórn setti verkefninu auk þess eftirfarandi forsendur:
? Að sameina inngang og afgreiðslu íþróttahúss og sundlaugar með það markmiði að nýta starfsfólk sem best og að inngangurinn sé skemmtilegur og aðlaðandi fyrir gesti og gangandi.
? Að íþróttahúsið geti nýst sem veislusalur fyrir 350-400 gesti á snyrtilegan og einfaldan hátt.
? Að körfuknattleiksvöllur verði löglegur.
? Að bæta æfingaaðstöðu fyrir júdódeild og taekwondo.
? Að bæta æfingaaðstöðu og áhaldageymslu fyrir fimleikadeild.
? Að almenningsíþróttir fái að njóta sín.
? Að húsnæðið rúmi sameiginlega afstöðu fyrir deildir UMFG til funda og skrifstofuhalds.
? Að byggingin sé í samræmi við aðrar byggingar á reitnum, látlaus og að fermetrar nýtist sem best.

UMFG var með fulltrúa í vinnuhópnum sem tók virkan þátt í mótun tillögunnar. Auk þess var haft samráð við deildir UMFG, m.a. á kynningarfundi þann 12. desember 2011. Nokkrar athugasemdir komu fram á fundinum. Knattspyrnudeild-, körfuknattleiksdeild- , og taekwondódeild UMFG skiluðu síðar inn skriflegum athugasemdum sem og aðalstjórn UMFG. Vinnuhópurinn fjallaði um athugasemdirnar og var tekið tillit til þeirra eftir því sem efni og ástæður þóttu til. Lokaskýrslu hópsins var skilað til bæjarstjórnar þann 25. janúar 2012 og komu athugasemdirnar fram í skýrslunni. Í kjölfar skýrslunnar var unnið áfram með málið og skipuð byggingarnefnd, þar sem UMFG á fulltrúa sem hefur tekið virkan þátt í starfi nefndarinnar og komið ábendingum um útfærslur á framfæri. Verkefnið hefur nú verið í vinnslu í tvö og hálft ár og ljóst er að haft var samráð við UMFG á öllum stigum málsins og er það nú á lokastigum hönnunar. Heildarkostnaður við undirbúning og hönnun nálgast nú 10 milljónir kr. Einnig fundaði bæjarráð með fulltrúum deilda þann 15. janúar 2013.

Snemma árs 2012 komu fram athugasemdir frá körfuknattleiksdeild UMFG þar sem óskað var eftir því að stækkun á íþróttahúsinu yrði frestað og kostir þess að byggja nýtt íþróttahús yrðu skoðaðir betur. Í framhaldinu var farið vel yfir kosti og galla þess að byggja nýtt íþróttahús í stað þess að stækka núverandi hús. Bæjarstjórn komst síðan að þeirri niðurstöðu sumarið 2012 að halda ætti áfram með tillögu nefndarinnar um að stækka núverandi húsnæði í stað þess að byggja nýtt íþróttahús. Rökin voru meðal annars þau að byggingarkostnaður og rekstrarkostnaður á húsnæði sem rúmaði löglegan körfuboltavöll væri mun meiri en stækkun á núverandi húsi. Með því að stækka núverandi íþróttahús eru Grindvíkingar komnir með glæsilegt keppnisíþróttahús. Á fundi bæjarráðs í janúar 2013 óskaði körfuknattleiksdeildin eftir því að þessi afstaða yrði endurskoðuð. Því til stuðnings voru lagðar fram upplýsingar um tímaþörf í nánustu framtíð. Síðustu vikur hafa því bæjarfulltrúar farið yfir þessa ákvörðun að nýju og komist að sömu niðurstöðu og áður. Útreikningar sýna að tímaþörf verður uppfyllt við stækkun íþróttahússins ásamt því að auka opnunartíma.

Athugasemdir knattspyrnudeildar UMFG hafa snúist að því að knattspyrnudeildin vill sjá sína framtíðaraðstöðu byggjast upp við Hópið. Vert er að benda á að bæjarstjórn samþykkti á bæjarstjórnarfundi þann 28. september 2011 að markmið uppbyggingarinnar á íþróttasvæðinu yrði að sameina aðstöðu fyrir deildir UMFG til funda og skrifstofuhalds. Einnig myndi aðstaðan rúma búningsklefa sem snéru beint að aðalvelli knattspyrnudeildarinnar. Á fjögurra ára fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar er einnig gert ráð fyrir því að byggja aðstöðu við Hópið, aðstöðu sem mun rúma salerni og aðstöðu til veitingasölu sem nýtist Hópinu yfir vetrartímann en stúkunni yfir sumartímann.

Vert er að vekja athygli á því að bæði nefnd um Framtíðaruppbyggingu á íþróttasvæði Grindavíkur sem skilaði skýrslu í ágúst 2009 sem og nefnd um skipulag íþróttasvæðis Grindavíkur og uppbyggingu mannvirkja til næstu ára sem skilaði skýrslu í janúar 2012, komust að sömu niðurstöðu varðandi það hvað ætti að vera upphafsáfangi. Fyrsti áfangi ætti að sameina afgreiðslur sundlaugar og íþróttahúss ásamt því að byggja upp félagsaðstöðu fyrir UMFG og nú Kvenfélags Grindavíkur. Það er mjög mikilvægt að sameina þessar afgreiðslur til þess að samnýta starfsfólk og geta þannig haft íþróttamiðstöðina opna lengur. Íþróttamiðstöðin er meira en aðstaða fyrir deildir UMFG en íþróttahúsið og sundlaugin þjóna einnig grunnskólabörnum ásamt því sem almenningur nýtir þessa aðstöðu auk líkamsræktarstöðvarinnar. Einnig er íþróttasvæðið vinnustaður fjölda fólks bæði starfsfólks íþróttamiðstöðvarinnar, kennara og þjálfara. Með nýjum lögum frá Alþingi er þess einnig krafist að bætt sé við starfsfólki til eftirlits við sundlaug. Það er því mjög mikilvægt að sameina starfsstöðvar íþróttahús og sundlaugar svo hægt sé að samnýta starfsfólkið betur og uppfylla þannig kröfur laga um öryggi á sundstöðum án þess að auka rekstrarkostnað of mikið. Sameining deilda UMFG á eitt svæði mun vonandi skila sér í auknu samstarfi deildanna öllum til hagsbóta líkt og reynsla annarra sveitarfélaga hefur sýnt.

Í fyrsta sinn í langan tíma er nú komin fjögurra ára áætlun varðandi uppbyggingu á íþróttasvæðinu. Þessi áætlun gerir ráð fyrir því að á næstu fjórum árum verði byggt fyrir 700-800 milljónir króna á íþróttasvæðinu. Öll útfærslan tekur mið að því að reynt er að bæta úr brýnustu þörf allra deilda. Engin deild fékk sínar ýtrustu kröfur uppfylltar en þó var reynt að gera eins vel við allar deildir og hægt er innan skynsamlegra marka. Við útfærslu á uppbyggingaráætluninni var mikilvægt að geta stjórnað uppbyggingarhraðanum. Verkefninu er því áfangaskipt og hvenær sem er hægt að flýta eða fresta frekari uppbyggingu. Ástæðan er sú að nauðsynlegt er að geta stýrt hraðanum í samræmi við fjárhag Grindavíkurbæjar, stöðu í efnahagsmálum og aðstæður í byggingariðnaðinum.

Þessi uppbygging mun ekki þýða að aldrei aftur verði byggt íþróttamannvirki í Grindavík. Deiliskipulag íþróttasvæðisins gerir ráð fyrir stórum byggingareit í kringum Hópið og er vel hægt að byggja annað íþróttahús síðar meir, hvort sem það er við Grunnskólann við Ásabraut eða við íþróttasvæðið.

Uppbygging íþróttasvæðisins, líkt og önnur uppbygging bæjarfélagsins, er verkefni sem lýkur aldrei en einhverstaðar verður að byrja. Vonandi getum við öll sameinast um þessi fyrstu skref og fagnað því að árið 2016 verður komin stórbætt aðstaða fyrir þær deildir UMFG sem og fyrir almenning, hvort sem það eru iðkendur eða áhorfendur.

Fulltrúar B-, G- og S-lista.

Bókun fulltrúa D-lista.
Ljóst er að meirihlutinn tekur ekkert tillit til þeirra miklu athugasemda sem deildir UMFG hafa sett fram við fyrirhugaða framkvæmdir á íþróttasvæðinu, og ætlaði sér það aldrei.
Þessir fundir með deildunum er ekkert annað en tímasóun á tíma þeirra sem komið hafa á fund bæjarráðs.

Fulltrúi D- lista

Bókun fulltrúa B-, G- og S-lista.

Eins og komið hefur fram í bókun meirihlutans hefur, á síðustu þrem vikum, verið farið vel yfir öll þau gögn og athugasemdir sem borist hafa frá deildum UMFG. Fulltrúar meirihlutans hafa einnig rætt við sitt bakland. Niðurstaðan var að halda áfram með óbreytt plön og má sjá rökstuðning fyrir því í fyrri bókun meirihlutans ásamt greinargerð er fylgir með henni.

Fulltrúar B-, G- og S-lista.


Fulltrúar aðalstjórnar UMFG koma á fundinn ásamt Guðmundi Bragasyni sem tilnefndur var sem fulltrúi deilda á fundi þeirra í janúar.