Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1202032

Bæjarstjórn Grindavíkur - 474. fundur - undefined


Til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur Grétar, Marta, Kristín María, Páll Jóhann og Jóna Rut.

Lögð fram tillaga um viðbót við reglur um leikskóla. Við grein III. Reglur um úthlutun leikskóladvalar, 3. tölulið bætist liður vi. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að vi. liður orðist svo: Börn starfsmanna leikskólakennara eða leiðbeinenda í leikskóla í Grindavíkurbæ.
Einnig er umorðað hvernig beri að skila umsókn/gögnum vegna forgangs. Mikilvægi forgangs fyrir starfsmenn liggur í starfsmannaskorti í Laut.

Tillaga
Að vi liður orðist svo: Börn starfsmanna í leikskólum í Grindavík.
Tillagan er felld með 5 atkvæðu gegn atkvæðum Páls Jóhanns og Guðmundar Grétars.

Tillaga frá fulltrúa G-lista
Að vi liður orðist svo: Börn starfsmanna í leikskólum í Grindavík sem starfa við kennslu og umönnun.
Tillagan er samþykkt með 6 atkvæðum, Páll Jóhann situr hjá.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu tillögu bæjarráðs með þeirri breytingu sem felst í tillögu frá fulltrúa G-lista.


Fyrir bæjarráði lá fyrir tillaga um viðbót við reglur um leikskóla. Einnig að umorðað verði hvernig beri að skila umsókn/gögnum vegna forgangs. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að vi. liður orðist svo: Börn leikskólakennara eða leiðbeinenda í leikskóla í Grindavíkurbæ.