Málsnúmer 1202024
Bæjarráð Grindavíkur - 1323. fundur - undefined
Fyrirliggjandi eru umsagnir skipulags- og umhverfisnefndar og hafnarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir að breyta lóðarmörkum skv. meðfylgjandi tillögu nr. 2 þannig að lóðin verði 3.515 m2. Bæjarráð tekur undir tillögu skipulags- og umhverfisnefndar um að málaðar verði veglínur við gatnamót Miðgarðs og Seljabótar, jafnframt að biðskylda verði færð fram til þess að auka umferðaröryggi. Jafnframt leggur bæjarráð til að settur verði dropi eða miðeyja í aðkeyrslu að hafnarsvæðinu.
Bæjarráð hvetur jafnframt til þess að lóðarhafi setji upp skjólgirðingu við suður, austur og vesturmörk lóðarinnar.