Málsnúmer 1112041
Bæjarstjórn Grindavíkur - 424. fundur - undefined
Til máls tóku: Guðmundur, Bryndís og Páll Valur
Með vísan til minnisblaðs sviðsstjóra skipulags-og umhverfissviðs dags. 8. október leggur bæjarstjóri til að sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs verði heimilt að breyta starfslýsingu byggingafulltrúa og fela honum mannaforráð og ábyrgð á verkefnum þjónustumiðstöðvar.
Í tillögunni felst að byggingafulltrúa verður falin ábyrgð á stjórn og mannahaldi í þjónustumiðstöð með það að markmiði að bæta þjónustu og efla fyrirbyggjandi viðhald á eignum Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð leggur til að tillagan verði samþykkt.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 5 atkvæðum, Guðmundur og Páll Gíslason sitja hjá.
Bókun
Með þessari ákvörðun meirihlutans að fjölga um 2 stöðugildi við áhaldahúsið frá því sem nú er, er snúið frá þeirri ákvörðun, að ekki mætti fjölga stöðugildum við stofnanir bæjarins, sem fylgt hefur verið undanfarin ár og forstöðumönnum bæjarins var falið að fylgja við vinnslu fjárhagsáætlunarinnar. Fulltrúa D ? lista finnst þetta röng forgangsröðun.
Fulltrúi D - lista
Fundarhlé tekið kl. 18:10
Fundarhléi lauk kl. 18:15
Bókun
Með tillögunni er verið að breyta áherslum þannig að fækkað er um 50% stöðugildi hjá bæjarskrifstofunni og í staðinn aukið um 50% stöðugildi í þjónustumiðstöðinni. Þar af leiðandi er ekki verið að fjölga starfsfólki. Þau stöðugildi sem fulltrúi D-lista misskilur sem viðbótarstöðugildi eru stöðugildi sem fyrir voru í fjárhagáætlun síðustu ára og stöðugildi er fulltrúi D-lista hefur áður samþykkt. Nú er eingöngu verið að ráða í þau stöðugildi er losnuðu fyrr á árinu. Með sömu rökum og D-listinn beitir í þessu máli er hann að gefa í skyn að aldrei megi ráða í þær stöður er losna í bæjarfélaginu án samþykkis bæjarstjórnar. Heildaraukakostnaður við þessa breytingu er um 2,3 milljónir kr.
Fulltrúar B-, G- og S-lista.