Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1111095

Bæjarráð Grindavíkur - 1315. fundur - 4.9.2013 00:00:00


Húsfélagið Laut 16 hefur krafið Grindavíkurbæ um greiðslu skaðabóta vegna galla á fasteigninni.

Bréf frá lögmanni bæjarins lagt fram þar sem kröfunni er hafnað, enda getur sveitarfélagið ekki borið ábyrgð á einstökum byggingaframkvæmdum í sveitarfélaginu.
Bæjarráð harmar þá stöðu sem íbúar og eigendur eru lentir í vegna galla á fasteigninni. Grindavíkurbær á eina íbúð í húsinu og er því aðili að húsfélaginu.