Innviðanefnd - 14. fundur
- 23.02.2026
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 16:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 14
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Lilja Ósk Sigmarsdóttirvaraformaður
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Unnar Á. Magnússonaðalmaður
- Páll Jóhann Pálssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
- Sigurður Rúnar Karlssonveitustjóri
- Guðjón BragasonLögfræðingur
1. Einland 129172 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Helena Sandra Antonsdóttir mun mæta til fundarins til að ræða framhaldið varðandi byggingarleyfisumsókn á Einlandi í Þórkötlustaðahverfi. Engin ný gögn eru til dreifingar en eldri gögn sett undir dagskrárliðinn til glöggvunar.
Helena Sandra Antonsdóttir, Særós Stefánsdóttir og Jón Örn Eyjólfsson sátu fundinn undir dagskrárliðnum. Rætt um byggingarleyfisumsókn á Einlandi í Þórkötlustaðarhverfi. Innviðanefnd tók erindið fyrir síðast á fundi þann 8. september 2025.
Farið yfir umsögn MÍ og síðustu vendingar í málinu. Ákveðið að arkitekt umsækjanda ræði við Minjastofnun Íslands um framhaldið. Þá er skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram með umsækjanda.2. Ósk um að hefja vinnu við breytingu á deiliskipulagi vegna aðkomuleiðar að Efrahóp
Tillögur um vegaframkvæmdir í Efrahópi lagðar fram á nýjan leik. Áður hefur innviðanefnd samþykkt tillögu 1 og falið skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram m.t.t. deiliskipulasgbreytinga o.s.frv. Skipulagsfulltrúi óskar eftir staðfestingu á því að vinna skuli eftir tillögu 1. Til stóða að taka málið inn með afbriðgðum á síðasta fundi innviðanefndar (í kjölfar ábendingar íbúa við Efrahóp) sem var ekki gert.
Málið tekið aftur á dagskrá nefndarinnar vegna ábendinga forgangsréttarhafa við Efrahóp. Innviðanefnd samþykkir að farið verði í breytingu á deiliskipulagi fyrir tillögu 1. Skipulagsfulltrúa falið að hefja ferli við þær deiliskipulagsbreytingar sem þarf skv. tillögu 1 og að grenndarkynna þær fyrir eigendum og forgangsréttarhöfum við Efrahóp og Arnarhlíð þar sem óskað verður eftir athugasemdum og ábendingum. Grenndarkynning verður jafnfram auglýst á heimasíðu sveitarfélagsins.
3. Fráveita Grindavíkurbæjar - aðgerðaáætlun og áfangaskipting
Lögð fram til kynningar uppfærð áætlun um fráveituframkvæmdir sem send hefur verið til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins ásamt umsókn um styrk til fráveituframkvæmda. Á árinu 2026 er lögð áhersla á fóðrun á fráveitulögn í vesturstofni.
Lögð fram til kynningar uppfærð áætlun um fráveituframkvæmdir sem send hefur verið til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins ásamt umsókn um styrk til fráveituframkvæmda. Á árinu 2026 er lögð áhersla á fóðrun á fráveitulögn í vesturstofni.
Innviðanefnd samþykkir áætlunina.4. Mat á vernd húsa vegna umsókna um niðurrif
Fram undan eru örútboð vegna niðurrifs altjónshúsa. Lagður er fram listi um hús sem verða í næstu örútboðum. Þau eru:
Austurvegur 18
Austurvegur 20
Staðarsund 1
Víðigerði 24
Vörðusund 1
Víkurbraut 17
Túngata 25
Víkurbraut 52
Víkurbraut 42
Víkurbraut 36
Víkurbraut 32
Óskað er eftir afstöðu innviðanefndar um hvort mat á verndargildi framangreindra húsa standi í vegi fyrir niðurrifi.Fram undan eru örútboð vegna niðurrifs altjónshúsa. Lagður er fram listi um hús sem verða í næstu örútboðum. Óskað er eftir afstöðu innviðanefndar um hvort mat á verndargildi eftirtalina húsa standi í vegi fyrir niðurrifi.
Innviðanefnd gerir ekki athugasemdir við áform um niðurrif mannvirkja á Austurvegi 18, Austurvegi 20, Staðarsundi 1, Túngötu 25, Víðigerði 24, Víkurbraut 17, Víkurbraut 32, Víkurbraut 36, Víkurbraut 42, Víkurbraut 52 og Vörðusundi 1.5. Umsókn um framkvæmdaleyfi - Manir iðnaðarsvæði
Framkvæmdaleyfisumsókn frá Grindavíkurbæ vegna jarðvegsmana við iðnaðarsvæði við Bakkalág og jarðvegsfrágangs neðan Hlíðarhverfis lögð fram. Framkvæmdirnar eru í samræmi við deiliskipulag.
Innviðanefnda bókaði m.a. um þessi framkvæmdaráform undir máli nr. 2511028 (Tillaga um endurnýtingu jarðefna) á fundi nr. 12 þann 24. nóvember 2025.Framkvæmdaleyfisumsókn frá Grindavíkurbæ vegna jarðvegsmana við iðnaðarsvæði við Bakkalág og jarðvegsfrágangs neðan Hlíðarhverfis lögð fram. Framkvæmdirnar eru í samræmi við deiliskipulag.
Innviðanefnd samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis í samræmi við fyrirliggjandi umsókn og skýringarmynd enda samræmast þessar framkvæmdir gildandi skipulagi. Skipulagsfulltrúa er falið að gefa út framkvæmdaleyfið.6. Veitur Grindavíkur - Staðan feb 2026
Staðan á veitum í eigu Grindavíkurbæjar kynnt innviðanefnd.
Minnisblað um ástand veitna í eigu Grindavíkurbæjar var lagt fram og fór veitustjóri yfir helstu atriði þess. Innviðanefnd lýsir mikilli ánægju með það góða starf sem hefur verið unnið við krefjandi aðstæður eftir rýmingu bæjarins 10. nóvember 2023. Ástand veitna er heilt yfir gott þótt enn þurfi að fara fram viðgerðir á tilteknum svæðum í tengslum við sprunguviðgerðir í bænum.
7. Viðbrögð vegna sjávarflóða útgáfa 1,0 2026
Viðbragðsáætlun Grindavíkurhafnar vegna sjávarflóða fyrir árið 2026 lögðu fram til kynningar.
Viðbragðsáætlun Grindavíkurhafnar vegna sjávarflóða fyrir árið 2026 lögðu fram til kynningar og umræðu. Hafnarstjóri kynnti viðbragðsáætlun og svaraði spurningum nefndarmanna.
Innviðanefnd samþykkir viðbragðsáætlunina.8. Aðalskipulagsbreyting vegna vegaöryggis á Norðurljósavegi og Grindavíkurvegi
Unnið hefur verið úr umsögnum um óverulega breytingu á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar varðandi breytta veglínu Norðurljósavegar og tengingu vegarins við Grindavíkurveg, með það að markmiði að bæta umferðaröryggi. Tillagan hefur verið uppfærð með tilliti til ábendinga í umsögnum og er hún tilbúin til staðfestingar bæjarstjórnar.
Unnið hefur verið úr umsögnum um óverulega breytingu á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar varðandi breytta veglínu Norðurljósavegar og tengingu vegarins við Grindavíkurveg, með það að markmiði að bæta umferðaröryggi. Tillagan hefur verið uppfærð með tilliti til ábendinga í umsögnum.
Innviðanefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna og telur hana vera tilbúna til staðfestingar bæjarstjórnar. Þá samþykkti innviðanefnd að farið verði með skipulagstillöguna í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Erindinu er vísað til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.9. Umsókn um skipulagsbreytingu - deiliskipulag Svartsengi Northernlight inn
Grenndarkynningartíma skipulagsbreytingar við hótelið Northern Light Inn lauk 4. febrúar 2026 án athugasemda. Umsagnir bárust frá Bláa Lóninu og Landeigendafélagi Járngerðastaða og Hópstorfu. Skipulagstillagan er lögð fram til samþykktar.
Grenndarkynningartíma skipulagsbreytingar við hótelið Northern Light Inn lauk 4. febrúar 2026 án athugasemda. Umsagnir bárust frá Bláa Lóninu og Landeigendafélagi Járngerðastaða og Hópstorfu. Uppfærð gögn lögð fram eftir athugasemdir skipulagsfulltrúa Grindavíkubæjar.
Innviðanefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna. Í samræmi við 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1 við bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Skipulagsfulltrúa er falið að afgreiða deiliskipulagstillöguna í samræmi við skipulagslög.10. Reykjanesvirkjun: Meðferð og förgun útfellinga með aukna náttúrulega geislavirkni
Umsagnarbeiðni Skipulagsstofnunar vegna Reykjanesvirkjunar lögð fram til kynningar ásamt gögnum. Umsagnarfrestur er til 1. apríl 2026 og gert ráð fyrir að umsögn sveitarfélagsins liggi fyrir á næsta fundi innviðanefndar. Málið er nr. 207/2026 í skipulagsgátt.
Umsagnarbeiðni Skipulagsstofnunar vegna Reykjanesvirkjunar lögð fram til kynningar ásamt gögnum. Umsagnarfrestur er til 1. apríl 2026 og gert ráð fyrir að umsögn sveitarfélagsins liggi fyrir á næsta fundi innviðanefndar. Málið er nr. 207/2026 í skipulagsgátt. Skipulagsfulltrúa og lögfræðingi bæjarins falið að vinna málið áfram.
11. Dreifing búfjárábúrðar til uppgræðslu á svæði milli varnargarða
Málið tekið fyrir að nýju eftir viðbrögð frá Brimfaxa í kjölfar síðasta fundar innviðanefndar. Óskað hefur verið eftir umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja.
Málið tekið fyrir að nýju eftir viðbrögð frá Brimfaxa í kjölfar síðasta fundar innviðanefndar. Innviðasvið Grindavíkurbæjar hefur óskað eftir umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja (HES).
Innviðanefnd frestar málinu þar til umsögn HES liggur fyrir.12. Borholur í Krýsuvík - Umsagnarbeiðni vegna auglýsingar á skipulagsbreytingum
Umsögn Grindavíkurbæjar lögð fram til kynningar.
Umsögn Grindavíkurbæjar lögð fram til kynningar.
13. Atvinnustefna Suðurnesja 2026-2030
Atvinnustefna Suðurnesja 2026-2030 lögð fram til kynningar. Óskað er eftir viðbrögðum sveitarfélagsins.
Atvinnustefna Suðurnesja 2026-2030 lögð fram. Erindinu vísað til bæjarráðs sem fer með atvinnumál hjá sveitarfélaginu.
14. Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 94
Fundargerð afgreiðslunefndar byggingar- og skipulagsmála nr. 94 lögð fram til kynningar.
Fundargerð afgreiðslunefndar byggingar- og skipulagsmála nr. 94 lögð fram til kynningar.