Innviðanefnd - 9. fundur
- 23.06.2025
- Fundargerð
- Kl. 09:00 - 11:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 9
- Ritari: Elísabet Bjarnadóttir
Nefndarmenn
- Lilja Ósk Sigmarsdóttirvaraformaður
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Unnar Á. Magnússonaðalmaður
- Páll Jóhann Pálssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
- Sigurður Rúnar Karlssonveitustjóri
- Elísabet Bjarnadóttirskipulagsfulltrúi
- Guðjón BragasonLögfræðingur
Gestur fundarins undir 1. lið var Skarphéðinn Berg Steinarsson, fulltrúi í Grindavíkurnefnd.
1. Aðgerðaáætlun 2 vegna sprunguverkefnis og afhendingaröryggis veitukerfa
Aðgerðaráætlun 2 lögð fram til kynningar. Fulltrúi frá Grindavíkurnefnd situr fundinn undir þessum lið.
Aðgerðaráætlun 2 lögð fram til kynningar. Fulltrúi frá Grindavíkurnefnd situr fundinn undir þessum lið.
2. Umsókn um framkvæmdaleyfi
Fyrir hönd HS Veitna sækir Guðmundur Helgi Albertsson um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu bráðabirgðarafstrengs austan við Þorbjarnarfell. Tengingin liggur á milli Selháls, yfir hraunið og að tengingu rétt innan varnargarð L7. Málið hefur verið tekið fyrir í bæjarráði en óskað er eftir samþykki innviðanefndar til að gefa út framkvæmdaleyfi.

Innviðanefnd samþykkir beiðni um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu bráðabirgðarafstrengs austan Þorbjarnarfells.
Um er að ræða fullnaðarafgreiðslu skv. 2.gr. í viðauka 1.1. í bæjarmálasamþykkt. Skipulagsfulltrúa er gert að gefa út framkvæmdarleyfi skv. 13. gr. skipulagslaga sem gildir í 12 mánuði á forsendum lýsingar. Sækja skal um framlengingu ef nauðsyn krefur.3. Svæðisskipulag Suðurnesja - Tillaga
Svæðisskipulagsnefnd hefur samþykkt að senda endanlega tillögu að Svæðisskipulagi Suðurnesja 2024-2040 til samþykktar sveitarstjórna á Suðurnesjum, skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar og utanríkisráðuneytisins/Landhelgisgæslunnar, skv. 3 mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillagan er borin undir innviðanefnd til kynningar áður en hún er lögð fyrir bæjarstjórn til samþykktar.Svæðisskipulagsnefnd hefur samþykkt að senda endanlega tillögu að Svæðisskipulagi Suðurnesja 2024-2040 til samþykktar sveitarstjórna á Suðurnesjum, skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar og utanríkisráðuneytisins/Landhelgisgæslunnar, skv. 3 mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillagan er borin undir innviðanefnd til kynningar áður en hún er lögð fyrir bæjarstjórn til samþykktar.
Innviðanefnd mælir með því að bæjarstjórn samþykki tillöguna.4. Tillaga að óverulegri breytingu á aðalskipulagi - tímabundin ákvæði
Bæjarráð samþykkti að hluta tillögu skipulagsfulltrúa um óverulega breytingu á aðalskipulagi en vísaði öðrum þáttum tillögunnar til umræðu hjá innviðanefnd. Skipulagsfulltrúi og lögfræðingur Grindavíkurbæjar gera nánari grein fyrir álitaefnum, með hliðsjón af fundargerð bæjarráðs frá 1684. fundi sem haldinn var 18. júní 2025, og glærukynningu. Óskað er eftir því að innviðanefnd taki afstöðu til þess hvernig málið verði unnið áfram.

Skipulags- og umhverfissviði falið að vinna málið áfram með hliðsjón af umræðum á fundinum.5. Fyrirspurn til skipulags- og umhverfissviðs - Víkurhóp 51-59
Lögð fram fyrirspurn vegna fyrirhugaðrar nýtingar fasteigna að Víkurhópi 51-59 til skammtímaleigu. Óskað er eftir afstöðu bæjaryfirvalda varðandi áform lóðarhafa um að ljúka byggingu húsa á umræddum lóðum og mögulega útleigu þeirra til ferðamanna.

Lögfræðingi Grindavíkurbæjar falið að upplýsa fyrirspyrjanda um niðurstöðu jarðkönnunar og nýtingarmöguleika.6. Endurskoðun aðalskipulags 2024
Beiðni barst frá Vinum íslenskrar náttúru, VÍN, um að taka bréf frá þeim dags. 4.júní 2025 til afgreiðslu. Efni bréfsins snýst um mikilvægi þess að fara eftir leiðbeiningum um val á landi til skógræktar við skipulagningu sveitarfélagsins.

7. Fundargerðir 2025 - Svæðisskipulag Suðurnesja
Fundargerð 54. fundar Svæðisskipulags Suðurnesja sem fram fór þann 12. 06. 2025 lögð fram til kynningar.
Fundargerð 54. fundar Svæðisskipulags Suðurnesja sem fram fór þann 12. 06. 2025 lögð fram til kynningar.