Innviðanefnd - 4. fundur
- 15.01.2025
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 16:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 4
- Ritari: Sigurður A. Kristmundsson
Nefndarmenn
- Lilja Ósk Sigmarsdóttirvaraformaður
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Unnar Á. Magnússonaðalmaður
- Páll Jóhann Pálssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
- Elísabet Bjarnadóttirsérfræðingur skipulags- og umhverfissviðs
- Guðjón BragasonLögfræðingur
1. Endurskoðun aðalskipulags 2024
Til umfjöllunar: Vinnuhópur við gerð hættukorts.
Til þess að endurskoðun aðalskipulags geti átt sér stað, þarf að setja á fót vinnuhóp til að gera hættukort fyrir byggðina. Í þeim hópi þurfa að vera sérfræðingar af viðeigandi sviðum. Leitað var ráða hjá Skipulagsstofnun og Veðurstofu Íslands. Sem aðalsérfræðingar mælti VÍ með ÍSOR enda þeir unnið að jarðkönnun á svæðinu síðastliðið ár og mánuði.Til umfjöllunar: Vinnuhópur við gerð hættukorts.
Til þess að endurskoðun aðalskipulags geti átt sér stað, þarf að setja á fót vinnuhóp til að gera hættukort fyrir byggðina. Í þeim hópi þurfa að vera sérfræðingar af viðeigandi sviðum. Leitað var ráða hjá Skipulagsstofnun og Veðurstofu Íslands. Sem aðalsérfræðingar mælti VÍ með ÍSOR enda þeir unnið að jarðkönnun á svæðinu síðastliðið ár og mánuði.
Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.2. Gjaldskrá Grindavíkurhafnar 2025
Tillaga að þjónustugjaldskrá Grindavíkurhafnar fyrir árið 2025
Tillaga að þjónustugjaldskrá Grindavíkurhafnar fyrir árið 2025
Hafnarstjóri leggur til 5% hækkun á þjónustugjöld hafnarinnar fyrir árið 2025. Aflagjöld haldast óbreytt fyrir sama tímabil. Innviðanefnd samþykkir tillögu hafnastjóra og vísar málinu til staðfestingar í bæjarstjórn.3. Umsókn um framkvæmdaleyfi
Landsnet hugar að því að ráðast í breytingar á Svartsengislínu 1 áður en næstu mögulegu eldsumbrot verða.
Eini tilgangur breytinganna er að bregðast við yfirvofandi náttúruvá, til að verja mikilvæga innviði í þágu almannavarna. Vonir Landsnets standa til að hægt verði að byrja framkvæmdir upp úr miðjum janúar.Landsnet sækir um framkvæmdaleyfi fyrir breytingu á Svartsengislínu 1, sem felur í sér að reisa nýja stálmastralínu austan við núverandi leið yfir hraun, alls um 2,3 km., sbr. nánari lýsingu í umsókn um framkvæmdaleyfi ásamt fylgigögnum með umsókn.
Tilgangur framkvæmdarinnar er að bregðast við yfirvofandi náttúruvá og verja mikilvæga innviði gegn hraunrennsli. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi aðalskipulag Grindavíkurbæjar 2018-2032.
Fyrir liggur undanþága frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, dags. 13. janúar 2025, frá málsmeðferð samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021, sbr. 1. mgr. 29. gr. laganna. Skiplagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfisins og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfið þegar samþykki landeiganda liggur fyrir. Í samræmi við viðauka 1.1 við bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er um fullnaðarafgreiðslu að ræða.