Innviðanefnd - 10. fundur
- 08.09.2025
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 17:15
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 10
- Ritari: Elísabet Bjarnadóttir
Nefndarmenn
- Lilja Ósk Sigmarsdóttirvaraformaður
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Unnar Á. Magnússonaðalmaður
- Páll Jóhann Pálssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
- Sigurður Rúnar Karlssonveitustjóri
- Elísabet Bjarnadóttirsérfræðingur skipulags- og umhverfissviðs
- Guðjón BragasonLögfræðingur
Athugasemd: Sigurður Rúnar Karlsson sat fund undir dagskrárlið 1 og 2.
1. Sprungur og byggðarþróun í Grindavík
Á undanförnum mánuðum hefur farið fram kortlagning á sprungukerfum í Grindavík með tilliti til byggðarþróunar bæjarins. Í þessari vinnu hafa lóðir og opin svæði verið flokkuð eftir umfangi sprungna sem liggja um svæðin. Niðurstöðurnar mynda mikilvægan grunn fyrir hættumat og áframhaldandi skipulagsvinnu. Á fundinum verða kynnt drög að þessari vinnu.
Gestir undir dagskrárlið: Ögmundur Erlendsson og Jón Haukur Steingrímsson.
Á undanförnum mánuðum hefur farið fram kortlagning á sprungukerfum í Grindavík með tilliti til byggðarþróunar bæjarins. Í þessari vinnu hafa lóðir og opin svæði verið flokkuð eftir umfangi sprungna sem liggja um svæðin. Niðurstöðurnar mynda mikilvægan grunn fyrir hættumat og áframhaldandi skipulagsvinnu. Á fundinum verða kynnt drög að þessari vinnu.
Ögmundur og Jón Haukur kynntu vinnu sérfræðingahópsins. Innviðanefnd lýsti yfir ánægju með kynninguna en er meðvituð um að verkefnið er ennþá á vinnslustigi. Nefndin lýsti vilja til þess að almenn kynning fyrir íbúa á verkefninu fari fram á næstu vikum.2. Niðurrif altjónseigna
Málið tekið inn á fund Innviðanefndar til umfjöllunar í nefndinni
Málið tekið inn á fund Innviðanefndar til umfjöllunar.
Kynnt var vinna við undirbúning rammasamnings og örútboða fyrir niðurrif altjónshúsa. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.3. Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - Bláa lónið hreinsistöð
Erindi varðar uppsetningu hreinsistöðvar hjá Bláa lóninu, en nefndin óskaði eftir byggingarleyfisumsókn frá umsóknaraðilum í kjölfar framkvæmdaleyfisumsóknar svo að hægt væri að samþykkja áformin.
Erindi varðar uppsetningu hreinsistöðvar hjá Bláa lóninu, en nefndin óskaði eftir byggingarleyfisumsókn frá umsóknaraðilum í kjölfar framkvæmdaleyfisumsóknar svo að hægt væri að samþykkja áformin.
Innviðanefnd staðfestir að byggingaráformin eru í samræmi við skipulag á svæðinu. Um er að ræða fullnaðarafgreiðslu innviðanefndar með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022. Byggingarfulltrúi tekur við málinu í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.4. Norðurljósavegur 7 Innanhúsbreyting Silica hótel - Umsókn um byggingaráform og -leyfi
Fyrir hönd Eldvarpa sækir Sigríður S. Sigþórsdóttir um byggingarheimild fyrir innanhúsbreytingu. Um er að ræða breytingar á núverandi búningsklefum og meðferðarrými fyrir psoriases sjúklinga.
Í eldri teikningum og gögnum er þetta verkefni skráð sem Húðlækningastöð en nú beinast áherslur Hótel Silica að hótelrekstri, en þar er einnig starfssemi húðlækninga.Fyrir hönd Eldvarpa sækir Sigríður S. Sigþórsdóttir um byggingarheimild fyrir innanhúsbreytingu. Um er að ræða breytingar á núverandi búningsklefum og meðferðarrými fyrir psoriases sjúklinga. Í eldri teikningum og gögnum er þetta verkefni skráð sem húðlækningastöð en nú beinast áherslur Hótel Silica að hótelrekstri, en þar er einnig starfssemi húðlækninga.
Innviðanefnd staðfestir að byggingaráformin eru í samræmi við skipulag á svæðinu. Um er að ræða fullnaðarafgreiðslu innviðanefndar með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022. Byggingarfulltrúi tekur við málinu í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.5. Norðurljósavegur 9 Innanhúsbreyting Bláa lónið - Umsókn um byggingaráform og -leyfi
Fyrir hönd Eldvarpa ehf. sækir Sigríður S. Sigþórsdóttir hönnuður um byggingarleyfi fyrir innanhúsbreytingu í Bláa lóninu. Sótt er um að breyta hárgreiðslu- og snyrtirýmum í meðferðarherbergi.
Fyrir hönd Eldvarpa ehf. sækir Sigríður S. Sigþórsdóttir hönnuður um byggingarleyfi fyrir innanhúsbreytingu í Bláa lóninu. Sótt er um að breyta hárgreiðslu- og snyrtirýmum í meðferðarherbergi.
Innviðanefnd staðfestir að byggingaráformin eru í samræmi við skipulag á svæðinu. Um er að ræða fullnaðarafgreiðslu innviðanefndar með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022. Byggingarfulltrúi tekur við málinu í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.6. Einland 129172 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Framhald máls. Sótt er um byggingarleyfi til að byggja fjárhús/vélageymslu á N-V horni lóðar Einlands. Erindinu fylgja aðaluppdrættir frá Apparatinu dags. 21.5.2025. Á bæjarráðsfundi 18.júlí sl. var bókað vitlaust en þar samþykkti bæjarráð byggingaáformin og skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram. Umsækjandi var látinn vita í tölvupósti dags. 10 ágúst sl. Rétt bókun hefði verið að skipulagsfulltrúa væri falið að auglýsa, grenndarkynna og senda umsagnarbeiðni á Minjastofnun. Fyrrnefnt var gert og er auglýsingartíma og grenndarkynningu lokið. Engar athugasemdir bárust en umsögn Minjastofnunar liggur fyrir.
Álit Minjastofnunar er að framkvæmdin styrki ekki ásýnd svæðisins, hún taki ekki nægilega vel tillit til stærðarhlutfalla húsa sem fyrir eru á svæðinu og falli ekki vel að smágerðu byggðamynstri svæðisins. Endurskoða þurfi stærð og útlit byggingar og útfærslu með tilliti til fíngerðari byggðar. Ef fara á í framkvæmdir á þessum stað þarf að fá fornleifafræðing til að hafa framkvæmdareftirlit þegar farið er í jarðrask næst garðlögum.Framhald máls. Sótt er um byggingarleyfi til að byggja fjárhús/vélageymslu á N-V horni lóðar Einlands. Erindinu fylgja aðaluppdrættir frá Apparatinu dags. 21.5.2025. Á bæjarráðsfundi 18.júlí sl. var bókað vitlaust en þar samþykkti bæjarráð byggingaáformin og skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram. Umsækjandi var látinn vita í tölvupósti dags. 10 ágúst sl. Rétt bókun hefði verið að skipulagsfulltrúa væri falið að auglýsa, grenndarkynna og senda umsagnarbeiðni á Minjastofnun. Fyrrnefnt var gert og er auglýsingartíma og grenndarkynningu lokið. Engar athugasemdir bárust en umsögn Minjastofnunar liggur fyrir.
Álit Minjastofnunar er að framkvæmdin styrki ekki ásýnd svæðisins, hún taki ekki nægilega vel tillit til stærðarhlutfalla húsa sem fyrir eru á svæðinu og falli ekki vel að smágerðu byggðamynstri svæðisins. Endurskoða þurfi stærð og útlit byggingar og útfærslu með tilliti til fíngerðari byggðar. Ef fara á í framkvæmdir á þessum stað þarf að fá fornleifafræðing til að hafa framkvæmdareftirlit þegar farið er í jarðrask næst garðlögum.
Skipulagsfulltrúa falið að leita eftir viðbrögðum lóðarhafa vegna fyrirliggjandi umsagnar Minjastofnunar.7. Beiðni um umsögn á kynningu tillögu - Borholur í Krýsuvík
Hafnarfjarðarkaupstaður hefur óskað eftir umsögn vegna áforma um rannsóknarboranir í Krýsuvík, sjá mál nr. 869/2025 nýtt deiliskipulag og mál nr. 867/2025 breyting á aðalskipulagi í Skipulagsgátt. Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs þann 2.september sl. og var umsögn send inn fyrir hönd ráðsins þann 4. september.
Hafnarfjarðarkaupstaður hefur óskað eftir umsögn vegna áforma um rannsóknarboranir í Krýsuvík, sjá mál nr. 869/2025 nýtt deiliskipulag og mál nr. 867/2025 breyting á aðalskipulagi í Skipulagsgátt. Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs þann 2. september sl. og var umsögn send inn fyrir hönd ráðsins þann 4. september.
Umsögn lögð fram til kynningar.8. Endurskoðun aðalskipulags Voga 2024-2040 Auglýsing tillögu
Óskað er eftir umsögn vegna heildarendurskoðunar á Aðalskipulagi
Sveitarfélagsins Voga 2024-2040, mál nr. 1468/2024 í Skipulagsgáttinni. Beiðnir um umsagnir á fyrri stigum máls fór framhjá sviðinu.Óskað er eftir umsögn vegna heildarendurskoðunar á Aðalskipulagi
Sveitarfélagsins Voga 2024-2040, mál nr. 1468/2024 í Skipulagsgáttinni. Beiðnir um umsagnir á fyrri stigum máls fór framhjá sviðinu.
Í aðalskipulagi beggja sveitarfélaga hefur um árabil verið afmarkað svæði þar sem sveitarfélagamörk eru talin óljós. Alls er um að ræða um 24 km2 svæði sem sýnt er á dreifbýlisuppdrætti núv. tillögu. Í meðfylgjandi greinargerð í kafla 1.6, s.5 stendur:
„Ágreiningur er uppi um landamerki jarða og þar með sveitafélagsmörk Sveitarfélagsins Voga og Grindavíkurbæjar, en það svæði sem óvissa er um er um 24 km2. Unnið verður að samkomulagi um mörkin eða þau leyst með málaferlum og verður aðalskipulagið uppfært þegar sú niðurstaða liggur fyrir.“
Sveitarfélagið Vogar hefur ekki leitað til Grindavíkurbæjar vegna málsins en nefndin tekur undir að brýnt sé að leysa óútkljáð landamerki. Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu að umsögn um málið og felur skipulagsfulltrúa að senda hana inn á Skipulagsgátt undir málinu.9. Endurskoðun aðalskipulags Keflavíkurflugvallar 2023-2040 - Vinnslutillaga
Keflavíkurflugvöllur ohf óskar eftir umsögn um vinnslutillögu endurskoðaðs aðalskipulags flugvallarins.
Keflavíkurflugvöllur ohf óskar eftir umsögn um vinnslutillögu endurskoðaðs aðalskipulags flugvallarins.
Innviðanefnd Grindavíkurbæjar gerir ekki athugasemdir við vinnslutillöguna og felur skipulagsfulltrúa að senda svar inn á skipulagsgátt á mál nr. 567/2023.