Innviðanefnd - 3. fundur
- 16.12.2024
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 17:45
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 3
- Ritari: Elísabet Bjarnadóttir
Nefndarmenn
- Lilja Ósk Sigmarsdóttirvaraformaður
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Unnar Á. Magnússonaðalmaður
- Páll Jóhann Pálssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
- Sigurður Rúnar Karlssonveitustjóri
- Elísabet Bjarnadóttirskipulagsfulltrúi
- Guðjón BragasonLögfræðingur
1. Raforkuöryggi og upplýsingagjöf
Umræða um raforkuöryggi í Grindavíkurbæ. Óskað hefur verið eftir að fulltrúar HS Veitna mæti á fundinn.
Umræða um raforkuöryggi í Grindavíkurbæ. Óskað hefur verið eftir að fulltrúar HS Veitna mæti á fundinn.
Gestir: Fulltrúar frá HS Veitum, Egill Sigmundsson sviðsstjóri, Guðmundur Helgi Albertsson verkstjóri og Sigrún Ævarsdóttir samskipta- og markaðsstjóri. Sigurður Rúnar Karlsson mætti á teams.
Fulltrúar frá HS Veitum mættu á fundinn, Egill Sigmundsson sviðsstjóri, Guðmundur Albertsson verkstjóri og Sigrún Ævarsdóttir samskipta- og markaðsstjóri sátu fyrir svörum á fundinum.
í framhaldi af umræðum er hafnarstjóra og veitusstjóra falið að vinna málið áfram.2. Reiðstígar í landi Grindavíkur
Erindi hefur borist innviðanefnd frá formanni Hestamannafélagsins Brimfaxa. Félagið vill koma því á framfæri að 80% reiðvega í nágrenni íþróttasvæðis Brimfaxa séu farnir undir hraun og varnargarða. Beiðni er um að félagið fái að koma að borðinu þegar endurskoðun á skipulagningu stígakerfis fer af stað.

Tölvupóstur dags. 18.11.2024 lagður fram.
Innviðanefnd þakkar fyrir ábendinguna og vísar henni til endurskoðunar aðalskipulags.3. Mat á vernd húsa
Lagt fram vinnuskjal um mannvirki sem óskað hefur verið eftir niðurrifsheimild fyrir. Óskað er eftir afstöðu innviðanefndar til áforma um niðurrif eftirfarandi húsa: Lóuhlíð 1-3, Staðarsund 3, Austurvegur 5 - viðbygging Víðihlíð, Stamphólsvegur 2 og Melhólabraut 4.

Innviðanefnd samþykkir niðurrif á öllum eignum nema Stamphólsvegi 2.
Erindi vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.4. Endurskoðun aðalskipulags 2024
Lögð eru fram drög að verkefnislýsingu. Skipulagsfulltrúi gerir nánari grein fyrir málinu á fundinum.
Lögð eru fram drög að verkefnislýsingu. Skipulagsfulltrúi gerir nánari grein fyrir málinu á fundinum.
Máli vísaði til bæjarstjórnar.
Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.5. Ferskvatnsmöguleikar og vatnsból í Grindavík - ÍSOR 2010
Minnisblað ISOR um borun neysluvatsnholu fyrir Grindavíkurbæ, dags. 10.12.2024 lagt fram. Veitustjóri gerir nánari grein fyrir málinu á fundinum.
Minnisblað ISOR um borun neysluvatsnholu fyrir Grindavíkurbæ, dags. 10.12.2024 lagt fram. Veitustjóri gerir nánari grein fyrir málinu á fundinum.
Innviðanefnd telur mikilvægt að ráðist verði í verkefnið sem fyrst í samstarfi við Grindavíkurnefnd, til að auka neysluvatnsöryggi.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.6. Sjóvarnir við Grindavík vegna jarðsigs
Staða sjóvarnarverkefna kynnt. Hafnarstjóri gerir grein fyrir stöðu mála.
Staða sjóvarnarverkefna kynnt. Hafnarstjóri gerir grein fyrir stöðu mála.
Málið lagt fram og gert grein fyrir stöðu mála.