Hafnarstjórn Grindavíkur - 488. fundur
- 13.02.2023
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 18:00
- Seljabót 2
- Fundur nr. 488
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Anna Elísa Karlsdóttir Longaðalmaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
- Sverrir Auðunssonvaramaður
- Gunnar Már Gunnarssonvaramaður
1. Fundargerðir Hafnasamband Íslands 2023
Fundargerð 44 fundar Hafnasambands Íslands þann 20.01.2023 lögð fram til kyningar
lagt fram
2. Grindavík Frumathugun nýir garðar
Sigurður Sigurðarson hjá Vegagerðinni hefur falið Atla Karli Ingimarssyni að áætla kostnað vegna vinnu við frumathugun á grjótnámi í nýja brimvarnagarða f. innsiglingu til Grindavíkur.
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að taka saman alla mögulega verkþætti sem snúa að undirbúningi við gerð nýs brimvarnagarðs fyrir ytri innsiglingu og þær hafnabætur sem felast í breikkun og dýpkun í ytri og innri innsiglingu til hafnarinnar, ásamt því að skila inn tímalínu fyrrnefndra verkþátta.
3. Skipulagsgreining Grindavíkurhöfn
Staða verkefnis
Farið yfir stöðu mála
4. Verklýsing viðgerð Suðurgarður
Staða verkefnis, hafnarstjóri átti fundi með fulltúum Þorbjarnar hf um mögulegar land-raftengingar fyrir frystitogara Þorbjarnar við Suðurgarð. Á þeim fundum kom í ljós áhugi fyrir því að stækka landtengingar úr 125 Amp í 250 Amp.
Verkefnið er til skoðunar hjá verkfræðingi Vegagerðarinnar.
5. Öryggismál á hafnarsvæði 2022
Staða verkefnis
Öryggismerkingar eru klárar. Fyrir liggur að setja þær upp við helstu aðkomuleiðir á hafnasvæðið.