Hafnarstjórn Grindavíkur - 465. fundur
- 11.02.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- Seljabót 2
- Fundur nr. 465
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Páll Jóhann Pálssonaðalmaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
- Hallfreður G Bjarnasonvaramaður
- Leifur Guðjónssonvaramaður
1. Hagkvæmniathugun á stækkun Grindavíkurhafnar
Í samgönguáætlun 2019-2023 er komin fram ósk Grindavíkurhafnar um að setja upp reiknilíkan af höfninni til að kanna áhrif ýmissa breytinga á kyrrð innan hafnar.
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að óska eftir fundi með Vegagerðinni.
2. Innsiglingabaujur og merki - Grindavíkurhöfn
Hafnarstjórn þarf að komast að niðurstöðu um útfærslu á innsiglingaljósum og baujum sem best tryggja öryggi þeirra skipa sem fara um Grindavíkurhöfn.
Hafnarstórn felur hafnarstjóra að ósk nokkurra skipstjóra sem fara um höfnina, að kanna til hlýtar möguleika á að koma fyrir hentugri bauju í stað þeirra gömlu fyrir utan innsiglingarennu í samráði við Siglingasvið Vegagerðarinar og óska eftir viðauka þegar fyrir liggur hentug bauja. Samkvæmt Siglingasviði Vegagerðarinnar er áætlaður kostnaður u.þ.b. 2,4 milljónir.
3. Öryggismál á hafnarsvæði
Umræða um öryggismál á hafnarsvæði. Spurning hvort gera megi öryggisáætlanir í samvinnu við hafnastjóra í höfnum í næsta nágrenni.
Hafnastjóra falið að vinna hugmyndir að bættu öryggi á hafnasvæði í samvinnu við aðrar hafnir í nágrenni Grindavíkur.
4. Miðgarður, uppbygging: Verksamningur og framvinda
Verkið telst vera lokið
Verkið telst vera lokið
5. Miðgarður: Þekja, lagnir og raforkuvirki
Farið yfir stöðu verksins
Farið yfir stöðu verksins
6. Vigtarmál Grindavíkurhöfn
Farið yfir stöðu vigtarmála.
Farið yfir stöðu vigtarmála.
7. Ósk um leigu á Bjarna þór
Ósk um leigu á Bjarna Þór
Hafnarstjóra falið að ræða við björgunarsveitina um möguleika þess að Oddur V. sinni verkefnum hafnsögubátsins á meðan leiguverkefninu stendur