Hafnarstjórn Grindavíkur - 486. fundur
- 14.11.2022
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 18:30
- Seljabót 2
- Fundur nr. 486
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Páll Jóhann Pálssonvaraformaður
- Anna Elísa Karlsdóttir Longaðalmaður
- Páll Gíslasonaðalmaður
- Leifur Guðjónssonaðalmaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
1. Fundur Grindavíkurbæjar með Vegagerðinni 4. nóvember 2022
Fundur fulltrúa Grindavíkurbæjar og Vegagerðarinnar fór fram á bæjarstjórnarsal Grindavíkurbæjar þ. 4 nóvember 2022. Fundargerðin verður lögð til kynningar í hafnarstjórn þ. 14. nóvember
Hafnarstjórn leggur mikla áherslu á að haldið verði áfram að vinna með hugmyndir að bættri innsiglingu og hafnarmannvirkjum. Næsta mál er að kostnaðarmeta þær hafnabætur sem til skoðunar hafa verið hjá Vegagerðinni.
2. Öryggismál á hafnarsvæði 2022
Fimmtudaginn 13. október var haldinn upplýsinga- og vinnufundur í Kvikunni með helstu hagaðilum sem starfa á athafnasvæðum Grindavíkurhafnar.Taka þarf afstöðu til ýmissa mála sem þar komu fam m.a. uppsetning skilta, bílastæðamála og fleira
Hafnarstjóra falið að kaupa og setja upp viðvörunar og bannskylti við allar innaksturleiðir á bryggjur hafnarinnar. Færa þarf langtíma bílastæði fyrir sjómenn á staði þar sem ekki er hætta á að bílar skemmist vegna sjávarflóða. Hafnarstjóra falið að ræða við viðeigandi eigendur lóða um möguleg skipti á lóðum.
3. Grindavík-Viðgerð Kvíabryggju og stormpolli 2021
Verkinu er lokið. Hafnarstjórn þakkar Verktaka fyrir vel unnin störf.
4. Skipulagsgreining Grindavíkurhöfn
Skipulagsgreining, tilboð frá Eflu í skipulagsgreiningu á hafnasvæðum Grindavíkurhafnar.
Hafnarstjórn leggur til að samið verði við Eflu um skipulagsgreiningu Grindavíkurhafnar með framtíðarumsvif hafnarinnar í huga. Hafnarstjórn óskar eftir því að Vegagerðin ásamt skipulags - og umhverfissvið Grindavíkurbæjar verði höfð með til samráðs.
5. Fjárhagsáætlun Grindavíkurhafnar 2023-2026
Gjaldskrá Grindavíkurhafnar lögð til samþykktar hjá hafnarstjórn Grindavíkurhafnar.
Hafnarstjórn samþykkir gjaldskrá Grindavíkurhafnar fyrir árið 2023 og leggur hana til staðfestingar hjá bæjarstjórn Grindavíkur.