Hafnarstjórn Grindavíkur - 491. fundur
- 10.01.2024
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:00
- Seljabót 2
- Fundur nr. 491
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Páll Jóhann Pálssonvaraformaður
- Anna Elísa Karlsdóttir Longaðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonvaramaður
- Leifur Guðjónssonaðalmaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
1. Sjóvarnir við Grindavík vegna jarðsigs
Leggja þarf mat á það hvort að það þurfi að styrkja sjóvarnir þar sem landsig vegna jarðhræringa hefur orðið við strandlengjuna í Grindavík.
Leggja þarf mat á það hvort að það þurfi að styrkja sjóvarnir þar sem landsig vegna jarðhræringa hefur orðið við strandlengjuna í Grindavík.
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að óska eftir því við Vegagerðina að lagt verði mat á það hvort aukin hætta vegna sjávarflóða sé til staðar eftir jarðhræringarnar. Hafnarstjórn leggur á það áherslu að ef niðurstaða Vegagerðarinnar verði sú að meiri hætta stafi af sjávarflóðum en hingað til þá verði tafarlaust brugðist með viðeigandi hætti.2. Áhrif jarðhræringa á hafnarsvæði Grindavíkurhafnar
Landsig á hafnasvæðinu veldur því að hafnarsvæðið verður viðkvæmara fyrir sjávarflóðum.
Formanni hafnarstjórnar ásamt hafnarstjóra er falið að ræða við Vegagerðina um leiðir til að bregðast við sjávarflóðum innan hafnarinnar
3. Grindavík Frumathugun nýir garðar
Lagt fram skýrsla um grjótnám vegna gerð hugsanlegra brimvarnagarða sem verkfræðistofan Mannvit vann fyrir Vegagerðina,
Skýrsla Mannvits um grjótnám lögð fram. Hafnarstjórn leggur á það áherslu að haldið verði áfram með undirbúning og hönnun brimvarnagarða, breikkun ytri og innri innsiglingarrennu og snúningssvæði innan hafnarainnar.
4. Gjaldskrá Grindavíkurhafnar 2024
Gjaldskrá lögð fyrir hafnarstjórn til samþykktar
Hafnarstjórn samþykkir gjaldskrá fyrir árið 2024 og tekur hún gildi 1. febrúar 2024 og leggur hana til staðfestingar hjá bæjarstjórn.