Hafnarstjórn Grindavíkur - 485. fundur
- 12.10.2022
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- Seljabót 2
- Fundur nr. 485
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Páll Jóhann Pálssonvaraformaður
- Anna Elísa Karlsdóttir Longaðalmaður
- Páll Gíslasonaðalmaður
- Leifur Guðjónssonaðalmaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
1. Öryggismál á hafnarsvæði 2022
Samantekt rýnifunda Gísla með Þjónustuaðilum á hafnarsvæði.
Haldin verður fundur um öryggismál á hafnarsvæði með fulltrúm hagaðila á hafnarsvæðum í kvikunni þ. 13 október. Þar sem niðurstöður úr rýnifundum með hagaðilum og öryggisráðgjafa verða kynntar.
2. Fjárhagsáætlun Grindavíkurhafnar 2023-2026
Fjárhagsáætlun 2023-2026
Þjónustugjaldskrá 2023,ráðning hafnarvarðar/hafnsögumannsHafnarstjórn samþykkir vísutöluhækkun á þjónustugjaldskrá Grindavíkurhafnar 2023 og vísar henni til staðfestingar hjá bæjarstjórn. Hafnarstjórn samþykkir tillögu hafnastjóra um ráðningu hafnarvarðar/hafnsögumanns.
3. Grindavík-Viðgerð Kvíabryggju og stormpolli 2021
Um 40 milljónir eru komnar á samgögnuáætlun. Viðgerð á Rafmagnsbúnaði/stigalýsingar verða teknar með í greiðsluþátttöku.
lagt fram
4. Umsóknir vegna hafnargerðar og sjóvarna á samgönguáætlun 2023-2027
Öldulíkan sýnir að nýr varnagarður við SV. enda ytri innsiglingarinnar þarf að standast 7,5 metra háa öldu.
Hafnarstórn þakkar starfsmönnum Vegagerðarinnar fyrir framlagða vinnu við gerð ölduhæðarkorts utan við Grindavíkurhöfn. Ölduhæðarkortið er mikilvægt tól til að geta lagt mat á það hversu öflugur væntanlegur varnagarður þarf að vera til þess að þola mestu mögulega ölduálag á enda brimvarnagarðsins. Næstu skref er að leggja mat á það hversu mikil ölduhæð má vera fyrir tiltekina stærð skipa sem sigla inn eða út frá höfn í Grindavík miðað við staðsetningu nýja garðsins.