Hafnarstjórn Grindavíkur - 484. fundur
- 12.09.2022
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- Seljabót 2
- Fundur nr. 484
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Páll Jóhann Pálssonvaraformaður
- Anna Elísa Karlsdóttir Longaðalmaður
- Páll Gíslasonaðalmaður
- Leifur Guðjónssonaðalmaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
1. Öryggismál á hafnarsvæði 2022
Gísli Níls Einarsson sérfræðingur í öryggisstjórnun situr fundinn undir þessum lið
Lögð fram útektarskýrla um öryggismál á hafnarsvæði.
Hafnarstórn felur hafnarstjóra að kalla saman hagsmunaaðila sem vinna á hafnasvæðinu til fundar þar sem öryggismál verða til umræðu. Gísli Níls Einarsson mun stýra þeim fundi.
2. Fjárhagsáætlun Grindavíkurhafnar 2023-2026
Lagt fram tímaáætlun vegna fjárhagsáætlunar 2023-2026
Tímaáætlun fjárhagsáætlunar 2023 og rammaáætlunar 24-26 lögð fram.
3. Ný hafnarvog
Staða málsins
Ekki er þörf á nýrri hafnarvog fyrir næsta fjárhagsár.
4. Grindavík-Viðgerð Kvíabryggju og stormpolli 2021
Staða verkefnis
Reiknað er með að viðgerð á Kvíabryggju verði lokið í lok októbers eða byrjun nóvembers.
5. Hafnasambandsþing 2022
Búið er að skrá 7 fulltrúa frá Grindavík á hafnasambandsþingið í Ólafsvík 27. til 28. október
Eftirtaldir hafnarsambandsþings fulltrúar sem sitja þingið og fara með atkvæði fyrir hönd Grindavíkurhafnar eru; Ómar D. Ólafsson, Anna Long, Páll Jóhann Pálsson, Leifur Guðjónsson og Páll Gíslason. Auk þess eru með í för Sigurður A. Kristmundsson hafnastjóri og Fannar Jónasson bæjarstjóri.
6. Umsóknir vegna hafnargerðar og sjóvarna á samgönguáætlun 2023-2027
Málið er í vinnslu hjá Vegagerðinni, vonast er til að fá send gögn um stöðu mála þ. 12 sept
Athuganir sérfræðinga hjá Vegagerðinni á möguleikum þess að fjarlægja Sundboðann hafa leitt í ljós sterkar vísbendingar um að það hefði óveruleg áhrif á ölduhreyfingar innan hafnar. Sömuleiðis benda athuganir til þess að áhrif vegna öldufarsstrauma utan við áætlaðan brimvarnagarð staðsettur vestan megin við ytri innsiglingarennu yrði mun minni en við núverandi garða. Vegagerðin mun skoða í framhaldinu hvort það hefur áhrif á styrkleika austari varnagarðsins að fjarlægja Sundboðann. Einnig er í skoðun hversu kostnaðarsamt það er að gera vatnslíkan af Grindavíkurhöfn með nýjum varnargarði og útfærslum á innsiglingu.