Hafnarstjórn Grindavíkur - 480. fundur
- 10.01.2022
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- Seljabót 2
- Fundur nr. 480
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Páll Jóhann Pálssonaðalmaður
- Hallfreður G Bjarnasonaðalmaður
- Páll Gíslasonaðalmaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
- Páll Valur Björnssonvaramaður
1. Fundargerðir Hafnasamband Íslands 2021
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar
2. Umferðaröryggismál í Grindavík
Drög að stefnu Grindavíkurbæjar í umferðaröryggismálum lögð fram til umsagna fastanefnda í samræmi við bókun skipulagsnefndar þann 21.júní sl.
Klára þarf áformin sem búið var að ákveða á gatnamótum Ránargötu og Seljabótar.
3. Grindavík-Viðgerð Kvíabryggju og stormpolli 2021
Staða verkefnis rædd
Um 1/3 verkefnis er lokið. Hafnarstjóra falið að hafa samband við verktaka um að hefja aftur vinnu við verkið um leið og hægist á löndunum við Kvíabryggju í vor.
4. Óinnheimtanlegar kröfur
Hafnarstjórn þarf að taka afstöðu til niðurfellingar óinnheimtanlegra krafna
Hafnarstjórn samykkir að fella niður óinnheimtanlegar kröfur.
5. Grindavík 2021 - Frumathugun á ytri skjólgörðum og breikkaðri innsiglingarrennu
Staða verkefnis
Von er á frekari niðurstöðum fyrir næsta hafnarstjórnarfund.
6. Nýr löndunarkrani
Staða verkefnis
Búið er að setja kranann upp. Ganga þarf frá rafmagni og glussakerfi
7. Samstarf um sorp- og umhverfismál
Mótttaka sorps við Kvíabryggju
Halda þarf áfram að bæta umgengni á hafnarsvæði og finna leiðir til umbóta með samstarfsaðilum.
8. Nýframkvæmdir og viðhald handa
lagt fram
Hafnarstjóri leggur fram til kynningar áætlun um hafnarbætur til næstu 10 ára.
9. Sjávarflóð í Grindavíkurhöfn og víðar
Fara yfir atburðinn
Búið er að tilkynna tjón sem varð á hafnarmannvirkjum til Náttúrhamarasjoóðs. Strax var farið í að hreinsa og laga til á hafnarsvæði rafbúnaður yfirfarinn á Eyjabakka og á Kvíabryggju sem sjór komst í. Tjónamatsmaður frá Verkís fh NTÍ mun meta tjónið. Verkfræðingur frá hafnarsviði Vegagerðarinnar mun liðsinna höfninni að meta tjón á hafnarmannvirkjum og öðrum mannvikrkjum s.s. sjóvörnum í landi Grindavíkur.
10. Áform um stækkun og endurbætur á Miðgarði 3
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra og sviðstjóra skipulags- og umhverfissviðs að finna leiðir, með fulltrúum Vísis, til þess að athafnarými við Miðgarð skerðist sem allra minnst.