Hafnarstjórn Grindavíkur - 483. fundur
- 11.07.2022
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- Seljabót 2
- Fundur nr. 483
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Páll Jóhann Pálssonvaraformaður
- Anna Elísa Karlsdóttir Longaðalmaður
- Páll Gíslasonaðalmaður
- Leifur Guðjónssonaðalmaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
1. Grindavík-Viðgerð Kvíabryggju og stormpolli 2021
Staða verkefnis rædd
Verktakinn hefur aftur störf á viðgerð Kvíabryggju þ. 22 ágúst. En verkið tafist vegna skorts á byggingarefni
2. Verklýsing viðgerð Suðurgarður
Vegagerðin mun bjóða verkið út samkvæmt verklýsingu
Grindavíkurhöfn mun fjármagna viðgerð á þekjunni við Suðurgarð, en ríkisstyrkurinn mun skila sér í fjárlögum ríkisins 2023. Hafnarstjórn telur að ganga þurfi lengra í viðgerð á Suðurgarði og laga þurfi 15 metra breitt bil í stað 5 metra eins og fram kemur í verklýsingu Vegagerðarinnar og um 100 metra lengd af þekjunni. En þekjan er víða mjög sígin og yfirborðið illa farið.
3. Ný hafnarvog
Meta þarf burðargrind hafnavogarinnar (vörubílavogin) með það þykktarmælingu. Mögulega þarf að gera ráð fyrir nýrri hafnarvog í fjárhagsáætlun 2023. kostnaður er um 12 milljónir án vsk.
Meta þarf burðargrind hafnavogarinnar með þykktarmælingu. Mögulega þarf ef að gera ráð fyrir nýrri hafnarvog í fjárhagsáætlun 2023. kostnaður er ríflega 12 milljónir kr. án vsk.
4. Fundargerðir Hafnasamband Íslands 2022
Lagt fram
Lagt fram
5. Umsóknir vegna hafnargerðar og sjóvarna á samgönguáætlun 2023-2027
Umsóknir vegna hafnargerðar og sjóvarna á samgönguáætlun 2023-2027
Hafnarstjórn samþykkir að umbeðin gögn og rökstuðningur fyrir ósk um framlag ríkisjóðs á samgönguáætlun 2023 til 2027 til hafnabóta og sjóvarna í landi Grindavíkur verði send til Vegagerðarinnar. Hafnarstjórn felur bæjarstjóra og hafnarstjóra einnig að óska eftir ítarlegri greiningu frá ráðgjafafyrirtæki, á uppbyggingaþörf hafnamannvirkja ásamt kostnaðarmati og ávinningi af slíkum hafnabótum fyrir Grindavíkurhöfn, fyrirtæki og samfélagið allt í Grindavík. Ljóst er að mikil framtíðar tækifæri liggja í fiskveiðum, fiskvinnslu, lagareldi og margvíslegri þjónustu tengdum þessum greinum í Grindavík.
6. Hafnasambandsþing 2022
Grindavíkurhöfn hefur rétt á 5 fulltrúum
Hafnarstjórn hefur rétt á fimm fulltrúum á hafnasambandþingi sem haldið verður í Ólafsvík 27-28 óktóber 2022. Ásamt fulltrúm hafnarstjórnar mun hafnarstjóri og bæjarstjóri sitja þingið.
7. Öryggismál á hafnarsvæði 2022
Öryggismál á hafnarsvæði þarf að taka rækilega til skoðunar, hvað varðar merkingar og aðgagnsstýringar.
Hafnarstjóra falið að fá ráðgjöf í öryggismálum á hafnarsvæðinu.
8. Fráveita Grindavíkurbæjar - dælulögn frá Seljabót
lagt fram
Lagt fram