Hafnarstjórn Grindavíkur - 464. fundur
- 14.01.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- Seljabót 2
- Fundur nr. 464
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Páll Jóhann Pálssonaðalmaður
- Bergþóra Gísladóttiraðalmaður
- Páll Gíslasonaðalmaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
1. Miðgarður, uppbygging: Verksamningur og framvinda
Farið yfir stöðu verksins, lokamæling á eftir að fara fram að öðru leiti telst þessi áfangi verksins vera lokið
Farið yfir stöðu verksins
2. Miðgarður: Þekja, lagnir og raforkuvirki
Farið yfir stöðu verksins. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að athuga í samvinnu við siglingasvið hvort misfellur í steypulögn í þekju séu innan skekkjumarka.
Farið yfir stöðu verksins. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að athuga í samvinnu við siglingasvið hvort misfellur í steypulögn í þekju séu innan skekkjumarka.
3. Bakkalág 17 - Fyrirspurn um stækkun húsnæðis
Fyrirspurn um stækkun húsnæðis á lóð við Bakkalág 17
Páll J. Pálsson og Ómar D. Ólafsson viku af fundi meðan málið var tekið fyrir.
Hafnarstjórn gerir engar athugasemdir við fyrirspurnina4. Útsýnispallur við Grindavíkurhöfn
Frumdrög af teikningum af útsýnispalli og sviði lagðar fram til umræðu.
Hafnarstjórn telur að langt sé farið frá þeim hugmyndum sem farið var með af stað í upphafi. Hafnarstjórn hafnar því alfarið að hafnarsjóður fjármagni útsýnispall þar sem hann er ekki á hafnarsvæðinu.