Hafnarstjórn Grindavíkur - 477. fundur
- 21.05.2021
- Fundargerð
- Kl. 12:00 - 14:00
- Seljabót 2
- Fundur nr. 477
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Páll Jóhann Pálssonaðalmaður
- Hallfreður G Bjarnasonaðalmaður
- Bergþóra Gísladóttiraðalmaður
- Páll Gíslasonaðalmaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
Bergþóra Gísladóttir sat fundin í gegnum teams fjarfundabúnað.
1. Þróun og rannsóknir á hafnabótum
Í hafnarreiknilíkani hefur verið skoðaður sá möguleiki að breikka á ytri rennu. Athuganir gefa til kynna að möguleikar á breikkun rennunnar muni ekki hafa áhrif á kyrrð innan hafnar. Breikkun ytri rennu mun hafa mjög jákvæð áhrif á siglingaöryggi skipa í innsiglingu. Hafnarstjórn hvetur eindregið til þess að unnið verði ötullega að áframhaldandi rannsóknum svo að hægt verði að vinna með niðurstöður þeirra í komandi fjárhagsáætlunum sveitarfélagsins og ríkissjóðs.
Í hafnar reiknilíkani hefur verið skoðaður sá möguleiki að breikka á ytri rennu. Athuganir gefa til kynna að möguleikar á breikkun runnunnar muni ekki hafa áhrif á kyrrð innan hafnar. Breykkun ytri rennu mun hafa mjög jákvæð áhrif á siglingaöryggi skipa í innsiglingu. Hafnarstjórn hvetur eindregið til þess að unnið verði ötullega að áframhaldandi rannsóknum svo að hægt verði að vinna með niðurstöður þeirra í komandi fjárhagsáætlunum sveitarfélagsins og ríkissjóðs.
2. Endurbætur á Kvíabryggju
Vegagerðin hefur ekki lagt mat á hvort endurbætur á Kvíabryggju sé forgagnsverkefni eða ekki. Mat hafnarstjórnar á ástandi bryggjunnar er að það er afar brýnt að fara í verkefnið strax í haust. Skoða þarf möguleika á því hvort breyta megi hönnum bryggjunnar sem tekur mið að þörfum fiskiskipa sem nota þessa hafnaraðstöðu þ.m.t að bæta við 5. krananum og mögulega að skipta út krana 2 sem er orðin yfir tuttugu ára gamall.
Vegagerðin hefur ekki lagt mat á hvort endurbætur á Kvíbryggju sé forgagnsverkefni eða ekki. Mat hafnarstjóra á ástandi bryggjunnar er að það er afar brýnt að fara í verkefið strax í haust. Skoða þarf möguleika á því hvort breyta megi hönnum bryggjunnar sem tekur mið að þörfum fiskiskipa sem nota þessa hafnaraðstöðu þ.m.t að bæta við 5. kranaum og mögulega að skipta út krana 2 sem er orðin yfir tuttugu ára gamall.
3. Hreinlætisaðstaða við höfnina fyrir aðkomusjómenn
Undanfarin ár hefur fjöldi smærri aðkomubáta sem landa í Grindavíkurhöfn á tímabilinu mars - maí farið vaxandi. Afli frá áramótum í ár, er sá mesti í áratugi og má það þakka m.a.lönduðum afla af afkastamiklum línubátum sem bætast í hóp heimaskipa á þessum tíma. Í mörgum þessara báta eru ekki þvottavélar eða þurrkarar. Til þess að mæta þörfum þessara mikilvægu viðskiptavina hafnarinnar verður þeim boðin þvotta- og sturtuaðstaða.
Undanfarin ár hefur fjöldi smærri aðkomubáta sem landa í Grindavíkurhöfn á tímabilinu mars - maí farið vaxandi. Afli frá áramótum í ár, er sá mesti í áratugi og má það þakka m.a.lönduðum afla af afkastamiklum línubátum sem bætast í hóp heimskipa á þessum tíma. Í mörgum þessara skipa eru ekki þvottavélar eða þurrkarar og jafnvel takmörkuð hreinlætisaðstaða fyrir áhafnir þeirra. Til þess að mæta þörfum þessara mikilvægu viðskiptavina hafnarinnar og annara þjónustuaðila verður að finna lausn á hreinlætismálum þeirra.
4. Afgreiðsla á ís til báta og skipa
Ísstöð Ísfélags Grindavíkur er komin vel til ára sinna og mikil viðhaldsþörf er framundan. Forsvarsmenn Ísfélagsins kynntu málið fyrir formanni hafnarstjórnar og hafnarstjóra. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvaða leið ákveðið verður að fara með framhald þessa reksturs. ljóst er að afgreiðsla íss er mikilvægur lykilþjónustuþáttur á hafnarsvæðinu fyrir mörg þeirra skipa sem landa í Grindavíkurhöfn. Stærstu fyrirtækin eru sum hver með eign ísframleiðslu og þar með tiltölulega sjálfbær, en önnur ekki. Ísstöðin er í ákveðinni klemmu með sinn rekstur vegna minnkandi sölu á ís. Valkostirnir eru m.a.a. byggja upp gömlu ísstöðina á núverandi stað eða fjárfesta í nýrri og hugsanlega smærri einingu, með mögulega staðsetningu á landfyllingu við Suðurgarð.
Ísstöð Ísfélags Grindavíkur er komin vel til ára sinna og mikil viðhaldsþörf er framundan. Forsvarsmenn Ísfélagsins kynntu málið fyrir formanni hafnarstjórnar og hafnarstjóra. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvaða leið ákveðið verður að fara með framhald þessa reksturs. ljóst er að afgreiðsla íss er mikilvægur lykilþjónustuþáttur á hafnarsvæðinu fyrir mörg þeirra skipa sem landa í Grindavíkurhöfn. Stærstu fyrirtækin eru sum hver með eign ísframleiðslu og þar með tiltölulega sjálfbær, en önnur ekki. Ísstöðin er í ákveðinni klemmu með sinn rekstur vegna minnkandi sölu á ís. Valkostirnir eru m.a.a. byggja upp gömlu ísstöðina á núverandi stað eða fjárfesta í nýrri og hugsanlega smærri einingu, með mögulega staðsetningu á landfyllingu við Suðurgarð.
5. Viðhald tengivega að bryggjum
Lagt fram til kynningar
Málinu frestað og óskað er eftir frekari gögnum.
6. Tjón vegna rafmagnsleysis 5 mars 2021
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar
7. Fundargerðir Hafnasamband Íslands
lagt fram
8. Vefsíða Grindavíkurhafnar
Áfram hefur verið unnið með uppfærslu á vefsíðu Grindavíkurhafnar. Sótt hefur verið um lenið grindavikuhofn.is Óskað er eftir ábendingum um hvað betur megi fara og hvernig menn sjái fyrir sér vefsíðu hafnarinnar. Bent er á að bæta við aflestri af ölduhæð á við veðurupplýsingarnar.
Áfram hefur verið unnið með uppfærslu á vefsíðu Grindavíkurhafnar. Sótt hefur verið um lenið grindavikuhofn.is Óskað er eftir ábendingum um hvað betur megi fara og hvernig menn sjái fyrir sér vefsíðu hafnarinnar.
9. Innsiglingarbauja AIS
Almennt er ánægja með baujuna, ljóst er þó að bæta þarf á hana ballest til þess að minnka sveifluna af völdum sjólags. Einnig þarf að laga AIS tenginguna.
10. Samstarf um sorp- og umhverfismál
Almenn umræða um sorpmál
Merkingum á sorpgámum eru ábótavant og hafnarstjórn vill merkja gámana svo ekki verði umvillst í hvaða gáma tiltekið sorp á að fara í. Hafnarstjórn fagnar því að flokkun á sorpi sé hafin.
11. Frystigeymsla við Suðurgarð undirbúningsvinna
Umræða um frystivörugeymslu.
Að svo stöddu virðist ekki vera nægileg þörf fyrir frystivörugeymslu sem fyrirhuguð var á landfyllingu við Suðurgarð. Huga þarf að því að finna hafsækið fyrirtæki sem hefur áhuga eða þörf á því að staðsetja starfssemi sína á landfyllingu við Suðurgarð.