Hafnarstjórn Grindavíkur - 467. fundur
- 18.06.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 18:30
- Seljabót 2
- Fundur nr. 467
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Bergþóra Gísladóttiraðalmaður
- Páll Gíslasonaðalmaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
- Pétur Hafsteinn Pálssonvaramaður
- Hallfreður G Bjarnasonvaramaður
1. Miðgarður: Þekja, lagnir og raforkuvirki
Staðan á framkvæmdinni
Farið yfir stöðu verksins. Hefja á undirbúning fyrir malbiksframkvæmdir í næstu viku. Vinna við gerð á rafmagnstöflum eru í gangi.
2. Undirbúningur fyrir komu Tómasar Þorvaldssonar GK-10
Undirbúningur fyrir komu Tómas Þorvaldssonar GK-10
Minnisblað hafnastjóra lagt fram en í því kemur m.a.fram að hafinn er undirbúningur fyrir komu stærri skipa til Grindavíkurhafnar sem felur í sér að ný bauja verður komið fyrir við enda ytri innsiglingarrennu, austurgarðurinn verður upplýstur og dekk sett á enda Suðurgarðs.
3. Samgönguáætlun 2020 til 2024
Vinna við samgönguáætlun 2020-2023 er í undirbúningi. Skoða möguleika á hafnabótum sem fela í sér stækkun á særými innan hafnar með t.a.m. víkkun á innri austurgarði, en án þess þó að raska kyrrð innan hafnar.
Fyrir liggur talsverð viðhaldsvinna á löndunarbryggju f. smábáta. Dýpkun við flotbryggjur o.fl.Vinna við samgönguáætlun 2020-2023 er í undirbúningi. Skoða möguleika á hafnabótum sem fela í sér stækkun á særými innan hafnar með t.a.m. víkkun á innri austurgarði, en án þess þó að raska kyrrð innan hafnar.
Fyrir liggur talsverð viðhaldsvinna á löndunarbryggju f. smábáta. Dýpkun við flotbryggjur o.fl.