Hafnarstjórn Grindavíkur - 444. fundur
- 27.06.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- Seljabót 2
- Fundur nr. 444
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Pétur Már Benediktssonaðalmaður
- Páll Jóhann Pálssonaðalmaður
- Gunnar Ari Harðarsonaðalmaður
- Páll Þorbjörnssonvaramaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
1. Grindavíkurhöfn: Aðstaða fyrir hvalaskoðunarbát
Hafnarstjórn getur ekki orðið við þessari beiðni að svo stöddu, þar sem fyrir liggur að höfnin er að ráðast í miklar hafnarframkvæmdir við Miðgarð og má ekki við að missa bryggjupláss. Hafnarstjórn er jákvæð fyrir því að skoða aðrar lausnir þar til framkvæmdum við Miðgarð verður lokið.
2. Hafnarstjórn: D-listi gerir breytingu á fulltrúa
Lagt fram
3. Miðgarður 2: Tillaga að stækkun Veitingahúss
Hafnarstjórn tekur jákvætt í erindið en bendir jafnframt á að framundan eru miklar framkvæmdir við uppbyggingu Miðgarðs. Einnig bendir hafnarstjórn á að um athafnasvæði hafnarinnar er um að ræða og þegar uppbyggingu Miðgarðs verður lokið verða umsvif á bryggjunni mun meiri en nú eru.
4. Miðgarður: Hönnun
Stálið er komið, taka þarf ákvörðum um framhald verksins
Hafnarstjórn leggur til að Siglingasvið Vegagerðarinnar hefji vinnu við útboðsgögn vegna uppbyggingu Miðgarðs. Hafnarstjórn leggur til að undirbúningshópur um uppbyggingu Miðgarðs og Siglingasvið Vegagerðarinnar fundi sem fyrst um tilhögun verksins.