Hafnarstjórn Grindavíkur - 453. fundur
- 16.10.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- Seljabót 2
- Fundur nr. 453
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Pétur Már Benediktssonaðalmaður
- Páll Jóhann Pálssonaðalmaður
- Gunnar Ari Harðarsonaðalmaður
- Magnús Andri Hjaltasonvaramaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
1. Bjarni Þór: Ósk um Þurrleigu
Ósk um þurrleigu og þróun á samstarfi á rekstri hafnsögubáts
Samningur við Skipaþjónustuna samþykktur og hafnarstjóra falið að skrifa undir samninginn.
2. Grindavíkurhöfn: Fjárhagsáætlun 2018-2021
Fjárhagsáætlun Grindavíkurhafnar 2018-2021
Hafnarstjórn samþykkir tillögur hafnastjóra um hóflegar hækkanir á gjaldskrá 2018
3. Grindavíkurhöfn: Starfsáætlun 2018
Farið yfir helstu verkefni fyrir 2018
Hafnarstjórn ítrekar enn og aftur að Oddsbúð verði fjarlægð nú þegar, vegna aukinna umsvifa sem verða á Eyjabakka vegna framkvæmda við Miðgarð.
4. Grindavíkurhöfn: Öryggismál
Hafnarstjórn leggur áherslu á að gatnamótin Seljabót / Ránargata verði kláruð í samræmi við tillögur samráðshóps hagsmunaaðila og hafnarstjórnar um öryggismál á hafnarsvæðinu. Hafnastjóra falið að vinna málið áfram með umferðaröryggisnefnd Grindavíkurbæjar. Hafnarstjórn telur að erindið sé afar brýnt til þess að auka öryggi þeirra sem eiga erindi um hafnarsvæðið.
5. Rannsóknarnefnd sjóslysa: Öryggi á hafnarsvæði
Tillögur um öryggismál á hafnasvæðum frá rannsóknarnefnd sjóslysa
Hafnastjórn leggur mikinn metnað í að öryggismálum sé vel sinnt.