Hafnarstjórn Grindavíkur - 434. fundur
- 16.04.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 434
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Viktor Scheving Ingvarssonaðalmaður
- Pétur Már Benediktssonaðalmaður
- Gunnar Ari Harðarsonvaramaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
1. Miðgarður: Endurnýjun
Sigurður Ás Grétarsson frá Vegagerðinni verður á fundinum undir þessum lið
Sigurður Áss skýrði frá áætlunum um uppbyggingu Miðgarðs miðað við 180 metra sem afgreidd var frá Vegagerðinni inná samgönguáætlun. Hafnarstjórn óskar eftir því að Vegagerðin reikni út heildarkostnað á uppbyggingu á allri bryggjunni og dýpkun meðfram henni. Hafnarstjórn telur mjög brýnt að hefja framkvæmdir sem fyrst.
2. Deiliskipulag miðbæjar - Ránargata og Hafnargata.frh.
Farið verður yfir athugasemdir sem hafa borist
Hafnarstjórn vill að rútustæði sem áætluð eru fyrir neðan Kviku verði fyrir ofan Kviku við Hafnargötu. Hafnarstjórn vill athuga hvort kvöð ætti að vera á vegtengingu við Suðurgarð í gegnum landfyllingu, vestan við Íslandsbleikju.
3. Hafnsögubátur: Dráttarverkefni
Staða verkefnis
Hafnarstjóri fór yfir stöðu verkefnis.