Hafnarstjórn Grindavíkur - 451. fundur
- 14.08.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- Seljabót 2
- Fundur nr. 451
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Pétur Már Benediktssonaðalmaður
- Páll Jóhann Pálssonaðalmaður
- Gunnar Ari Harðarsonaðalmaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
1. Vegagerðin: Fjögurra ára samgönguáætlun 2018-2021
Tillögur frá hafnarstjórn fyrir fjögurra ára samgönguáætlun 2018-2021
Hafnarstjórn leggur áherslu á að fjármagn verði tryggt í samgönguáætlun til að klára framkvæmdir við Miðgarð.
Hafnarstjórn óskar eftir að haldið verði áfram lagningu sjóvarnagarðs við Stað til að verja kirkjugarðinn og að bryggjan í Þórkötlustaðanesi verði varin með varnagarði. Hafnastjórn felur hafnarstjóra og formanni hafnarstjórnar að fylgja erindinu eftir.2. Grindavíkurhöfn: Öryggismál
Bréf frá Öryggisfulltrúum Þorbjarnar og Vísi þar sem óskað er eftir samráðsvettvangi um öryggismál á hafnarsvæði
Hafnarstjórn tekur vel í erindið og leggur áherslu á að kallaðir verði til hagsmunaðilar á svæðinu í samstarfshópinn.