Hafnarstjórn Grindavíkur - 456. fundur
- 13.02.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- Seljabót 2
- Fundur nr. 456
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Pétur Már Benediktssonaðalmaður
- Páll Jóhann Pálssonaðalmaður
- Gunnar Ari Harðarsonaðalmaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
- Ámundínus Örn Öfjörðvaramaður
1. Miðgarður, uppbygging: Verksamningur og framvinda
Farið yfir stöðu mála
Hafnarstjóri fór yfir stöðu verksins
2. Grindavíkurhöfn: Dýpkun við Miðgarð
Viðbótardýpkun er komin til vinnslu í Samgönguáætlun 2019-2023
Hafnarstjórn óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2018 til að klára alla dýpkunina við Miðgarð og greiða því alla upphæð verksins þar til verkið kemst á fjárlög ríkissins.
3. Grindavíkurhöfn: Deiliskipulag, Eyjabakki og smábátahöfn
Ármann Halldórsson sviðstjóri skipulags - og umhverfissviðs situr fundinn undir þessum lið
Ármann sviðstjóri skipulags - og umhverfissviðs fór yfir hugmyndir af deiliskipulagi fyrir austurhluta hafnarsvæðissins. Ármann mun leggja fyrir hafnarstjórn nokkur drög að deiliskipulagi fyrir svæðið.
4. Miðgarður: Þekja
Vegagerðin vinnur að hönnun þekjunnar, kostnaðaráætlun lögð fram.
Hafnarstjórn leggur til að Vegagerðin í samvinnu við hafnarstjóra að klári vinnu við útboðsgögn og að verkið verði boðið sem fyrst út.