Hafnarstjórn Grindavíkur - 449. fundur
- 13.03.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- Seljabót 2
- Fundur nr. 449
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Pétur Már Benediktssonaðalmaður
- Páll Jóhann Pálssonaðalmaður
- Gunnar Ari Harðarsonaðalmaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Miðgarður, uppbygging: Verksamningur og framvinda
Taka þarf afstöðu um tillögu Hagtaks um að færa þilið 3 metrum utar en gert er ráð fyrir í frumhönnuninni. Einnig hvort hækka eigi bryggjuna um 20 cm samkvæmt ráðleggingum hönnunaraðila
Bergþór Jóhannsson frá Hagtaki kom og skýrði hafnarstjórn frá tillögum sínum. Fannar Jónasson bæjarstjóri og Kristín María forseti bæjarstjórnar sátu fundinn undir þessum lið. Tillaga Bergþórs felst í því færa þilið fram um 3 metra til viðbótar eða samtals 5 metrar, kostnaður við það eru 14,8 miljónir. Fordýpkunin verði 12 metrar í stað 5 metra, dýpkunarefnið sem kemur til viðbótar verði nýtt í fyllingu innan við nýja stálþilið. Kostnaður við fyllingarefnið ef það er sótt í nærliggjandi námur er um tæpar 13 milljónir. Kostnaður af viðbótar fordýpkun með aukafyllingarefni er u.þ.b. 65 milljónir. Afslátturinn nemur u.þ.b. 13 milljónum. Heildarkostnaður er því um 55 milljónir. Hafnarstjórn tekur vel í þessar tillögur og felur hafnarstjóra og formanni hafnarstjórnar að ræða við forsvarsmenn Siglingasviðs Vegagerðarinnar um þessar tillögur Hagtaks.
2. Hafnasamband Íslands: "verið tilbúin" Námskeið um fjölmiðlun
Hafnasambandið býður hafnarstjórnum að senda fulltrúa á námskeið þar sem fjallað verður um samskipti við nútíma fjölmiðla
Hafnarstjórn leggur til að hafnarstjóri sæki þetta námskeið.
3. Hafnasamband Íslands: Sjónvarpsþættir um hafnir
Á hafnasambandsþingi sl. haust var ákveðið að gera kynningarmálum hafna hærra undir höfuð m.a. gerð sjónvarpsþátta. Hafnarstjórn þarf að ákveða hvort vilji sé til þess að taka þátt.
Málinu frestað.