Hafnarstjórn Grindavíkur - 448. fundur
- 13.02.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- Seljabót 2
- Fundur nr. 448
- Ritari: Sigurður A Kristmundsson
Nefndarmenn
- Ómar Davíð Ólafssonformaður
- Pétur Már Benediktssonaðalmaður
- Páll Jóhann Pálssonaðalmaður
- Magnús Andri Hjaltasonvaramaður
- Sigurður A Kristmundssonhafnarstjóri
1. Grindavíkurhöfn: Áætlun um móttöku úrgangs
Sorpáætlun lögð fram til kynningar
Sorpáætlun Grindavíkurhafnar lögð fram, hafnarstjóra falið að birta áætlunina á vef Grindavíkurbæjar
2. Grindavíkurhöfn: Fjárhagsstaða
Bréf frá Hafnasambandi Íslands til hafna með bága fjárhagsstöðu, þar sem óskað er eftir því með hvaða hætti hafnasjóðir muni bregðast við.
Hafnarstjórn bendir á að rekstur hafnarinnar stendur að mörgu leyti vel, en líkt og margar fiskihafnir geta hafnarsjóðir sem reiða sig að mestu leyti á aflagjöld og hefðbundin þjónustugjöld af fiskiskipum illa staðið undir nauðsynlegum fjárfestingum. Þar skilur á milli hafna sem einnig hafa tekjur af út- og innflutningi. Afla sem skipað er á land í Grindavíkurhöfn eru u.þ.b. 20 milljarðar í útflutningsverðmætum. Um er að ræða gríðarleg aflaverðmæti sem fara um fiskiskipahafnir sem útflutningshafnir njóta góðs af. Hafnarstjórn telur að jafna þurfi hlut fiskhafna og út - og innflutningshafna í gegnum hafnabótasjóð.
3. Grindavíkurhöfn: Viðbragðsáætlun v/ bráðamengunar
Viðbragðsáætlun vegna bráðamengunar innan hafnarsvæðis lögð fram til kynningar
Viðbragðsáætlun vegna bráðamengunar innan hafnarsvæðis lögð fram til kynningarlögð fram, hafnarstjóra falið að birta áætlunina á vef Grindavíkurbæjar. Hafnarstjórn leggur áherslu á að haldnar verði æfingar með viðeigandi viðragðsaðilum samkvæmt samningi við Slökkvilið Grindavíkur.
4. Miðgarður: Hönnun
Siglingasvið vegagerðainnar leggur til að hæð bryggjunar verði 20 cm hærri. Von er á hönnuðum í næstu viku þar sem þessi mál verða yfirfarin.